Sorg í Bolungarvík - söfnun hafin Ellý Ármanns skrifar 19. júní 2013 20:00 Ísak lést eftir skammvinn veikindi aðeins 12 ára gamall. Við fengum leyfi til að birta þessa mynd.
Bolvíkingar hafa sett af stað söfnun fyrir foreldra ungs drengs, Ísaks Inga, sem féll frá í liðinni viku eftir skammvinn veikindi. Við fengum leyfi til að birta meðfylgjandi pistil ásamt mynd af drengnum sem var tólf ára gamall þegar hann féll frá en hluta úr pistlinum sem birtist á fréttavef Bolvíkinga þar sem bæjarbúar eru hvattir til að styðja við bakið á foreldrum Ísaks má lesa hér:Kæru bæjarbúar, vinir, velunnarar og aðrir þeir sem þekktu Ísak Inga Guðbjartsson og fjölskyldu hans. Sagt er að það þurfi heilt bæjarfélag til að ala upp barn. Öll börn okkar litla samfélags eru á einn eða annan hátt, okkar börn.Nú höfum við orðið fyrir þeim hræðilega harmleik að þurfa að sjá á eftir einum okkar dýrmæta syni, Ísaki Inga Guðbjartssyni sem lést í liðinni viku.Við vitum að ekkert getur linað sársauka foreldra, systkina og fjölskyldu Ísaks. Engin orð eru nógu máttug til að líkna né draga úr harmi þeirra, sorg eða söknuði.Í mínum huga hafa margar tilfinningar bærst, líkt og í ykkar. Sorg, söknuður, þakklæti og samhugur. Og þegar kemur að samhug, þá erum við vel sett að búa í litlu og kærleiksríku samfélagi.Foreldrar Ísaks eru ungt fólk. Ungt barnafólk sem nú stendur frammi fyrir erfiðasta verkefni lífs síns. Að kveðja barn sitt í hinsta sinn. Svo er einnig um okkur öll. Við kveðjum okkar dreng í hinsta sinn.Stofnaður hefur verið útfararsjóður til þess að standa straum af tilkostnaði þeim sem útför og allt hennar ferli ber með sér. Þeir sem vilja og geta, fá því að leggja sitt af mörkum og ég hugsa að okkur þyki það gott. Það er svo fátt annað sem við getum gert.Reikningsnúmerið er: 1176-05-400777 og kennitalan er 610269-7379Pistillinn í heild sinni - sjá nánar hér (Vikari.is).
Mest lesið Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Fleiri fréttir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik Sjá meira