Heldur ræðu um kvenréttindi hjá BBC Freyr Bjarnason skrifar 24. október 2013 07:00 Sigríður María Egilsdóttir er annar af tveimur aðalræðumönnum morgundagsins hjá BBC. fréttablaðið/valli „
Þetta er alveg rosalega spennandi og alveg æðislegt. Ég er mjög þakklát en geðveikt stressuð líka,“ segir Sigríður María Egilsdóttir. Hún verður annar af tveimur aðalræðumönnunum á viðburði sem breska ríkisútvarpið, BBC, stendur fyrir á morgun um konur og framtíðarmarkmið þeirra. Alls taka eitt hundrað konur víða að úr heiminum þátt í viðburðinum sem fer fram í höfuðstöðvum BBC í London og verður hægt að fylgjast með honum í sjónvarpi, útvarpi og á vefsíðu BBC. „Konan sem vinnur að skipulagningunni þekkir íslenska konu sem benti henni á mig,“ segir Sigríður María aðspurð. „Síðan höfðu þau samband og spurðu hvort ég vildi taka þátt. Þetta er tækifæri sem maður eiginlega getur ekki sagt nei við.“ Sigríður María, sem útskrifaðist úr Versló í vor, varð í apríl fyrsta konan í fjórtán ár sem hlaut titilinn Ræðumaður Íslands á Morfís, ræðukeppni framhaldsskólanna. Hún vakti einnig athygli fyrir fyrirlestur sinn „Three Generations Theory“ á viðburðinum Ted x Reykjavík í sumar sem fjallaði um jafnrétti kynjanna og kvennabaráttuna. Sigríður María segist vera búin að skrifa ræðuna sem hún ætlar að flytja á BBC og hefur að undanförnu verið að læra hana utan að. Hún mun taka um átta mínútur í flutningi. „Ég ætla að tala um framtíð kvenréttindabaráttunnar, hvert hún stefnir,“ segir hún, spurð út í innihald ræðunnar. „Ég hugsa að ástæðan fyrir því að þeir fengu mig til að gera þetta var að fá unga manneskju til að vera með ræðu. Líka af því að ég kem frá Íslandi, landinu sem er búið að vera í mörg ár í röð, samkvæmt Global Gender Gap Report, á lista yfir þau lönd sem hafa náð bestum árangri og standa fremst í jafnrétti kynjanna.“ Sigríður María flýgur út til London í dag og verður forvitnilegt að fylgjast með á BBC hvernig henni reiðir af.
Mest lesið „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Lífið Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Lífið Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Lífið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Loksins sást til hjónanna Lífið Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Lífið Steiney frumsýnir kærastann Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Fleiri fréttir „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Sjá meira