Heimtar refsiaðgerðir gegn Íslendingum í kvöld Karen Kjartansdóttir skrifar 15. júlí 2013 19:42
Sjávarútvegsráðherrar Evrópusambandsins fjalla nú um viðbrögð vegna veiða Íslendinga og Færeyinga á makríl. Írar og Bretar tilkynntu fyrir fundinn að tími væri kominn til að fara í hart vegna deilunnar. Forsætisráðherra Íslands fundar með forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins vegna málsins á morgun. Í írskum fjölmiðlum kemur fram að Simon Coveney, sjávarútvegsráðherra þar í landi, kallar eftir því að framkvæmdastjórn Evrópusambandsins beiti Íslendinga og Færeyinga hörku ef þeir undirgangist ekki kröfur sambandsins um veiðar á markíl. Fullyrðir hann að Íslendingar og Færeyingar hafi veitt of mikið um langt skeið og skaðaða stofninn. Samningaviðræður hafi engu skilað. Þetta er meðal þess sem nú er rætt að fundi sjávarútvegsráðherra sambandsins. Fundinn situr einnig Maria Damanaki, sjávarútvegsstjóri Evrópusambandsins, en búist er við því að hún gefi frá sér yfirlýsingu vegna málsins nú í kvöld. „Það er gert ráð fyrir því að Damanaki gefi frá sér einhvers konar yfirlýsingu um fundinn og hvort hún ætli sér að hefja refsiaðgerðir gegn Íslendingum vegna makríldeilunnar. Það fer væntanlega eftir því hve mikill pólitískur þrýstingur er inn á fundinum hvað hún ákveður að gera," segir Jóhannes Þór Skúlason, aðstoðarmaður Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra, sem staddur er í Brussel. Þeir Sigmundur og Jóhannes munu á morgun funda með José Manuel Barroso, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, og Herman Van Rompuy, forseta leiðtogaráðs Evrópusambandsins, og koma sjónarmiði Íslendinga í deilunni á framfæri. Það er ljóst að mikil gremja er vegna þessa máls en Írar og Bretar eru sérstaklega háværir. Jóhannes segir Íslendinga þó eiga bandamenn innan fundarins. „Það er ekkert ljóst um þetta enn þá, umboðið liggur hjá Mariu Damanaki og það fer eftir því hvernig stemmingin er inn á þessum fundi hve langt hún telur sig þurfa að ganga. Blaðamannafundir verða eftir báða fundina en hægt verður að fylgjast með þeim í beinni útsendingu á vef Evrópusambandsins.
Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Segir í tísku að setja „alþjóðasamfélagið“ ofar eigin þjóð Erlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Sjá meira