Talskona Femínistafélagsins gagnrýnir jafnréttiskafla nýs stjórnarsáttmála 26. maí 2013 19:46
Í jafnréttiskafla nýs stjórnarsáttmála kemur fram að ný ríkisstjórn Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks hyggist endurmeta þær aðferðir sem notaðar hafa verið í baráttu fyrir jafnrétti kynjanna með það að markmiði að bæta árangur á sviði jafnréttismála og vinna gegn launamuni kynjanna. Steinunn Rögnvaldsdóttir, talskona Femínistafélagsins, gagnrýnir kaflann og segir hann fremur snautlegan. „Þarna er talað um að endurmeta þær aðgerðir sem stjórnvöld hafa farið í til þess að ná kynjajafnrétti, og ég les í raun úr þessu lítt dulbúinn ásetning um að afnema lög um kynjakvóta í stjórnum fyrirtækja.“ Aðspurð hvort til standi að afnema kynjakvóta segir Eygló Harðardóttir félagsmálaráðherra svo ekki vera. „Framsóknarmenn studdu þetta ákvæði í lögum til dæmis um hlutafélög og um það að setja ákveðið kynjahlutfall í stjórnir fyrirtækja. Við erum sjálf með ákvæði í okkar lögum þannig að ég geri ekki ráð fyrir því að það verði eitthvað sem ég muni beita mér fyrir.“ Eygló segir jafnréttisstefnuna, eins og henni er lýst í stjórnarsáttmálanum, vera jafnrétti út frá víðtækari áherslum en áður hafi þekkst. Jafnréttisstefnan sé hugsuð fyrir alla hópa, óháð stöðu og kyni. „Eitt áherslumálið okkar verður jafnrétti. Það hefur verið eitt af mínum áherslumálum þannig að ég vil bara hvetja fulltrúa félagsins til að koma og hitta mig og fara bara í gegnum þeirra áhyggjur hvað varðar jafnréttismálin.“
Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira