Ólafsvíkur-Víkingar unnu fyrsta leikinn í Evrópukeppninni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. ágúst 2013 21:44 Ólafsvíkur-Víkingar byrja vel í Evrópukeppninni í Futsal. Mynd/Anton
Víkingur frá Ólafsvík vann 8-7 sigur á Anzhi Tallinn frá Eistlandi í kvöld í fyrsta leik liðsins í undankeppni Evrópukeppni félagsliða í Futsal en riðill Ólafsvíkur-Víkinga er einmitt spilaður í Ólafsvík. Antonio Jose Mossi sýndi flotta takta í kvöld og skoraði þrennu fyrir Víking en Eyþór Helgi Birgisson var síðan með tvö mörk. Brynjar Kristmundsson, Juan Manuel Torres og Eldar Masic voru líka á skotskónum í þessum flotta sigri. Þetta er í fyrsta skiptið sem Víkingur Ólafsvík leikur í þessari keppni en sem handhafar Íslandsmeistaratitilsins í Futsal tryggðu þeir sér rétt til að leika fyrir Íslands hönd í þessari keppni. Þetta byrjaði reyndar ekki vel fyrir Víkinga því Eistarnir voru komnir í 1-0 eftir aðeins tuttugu sekúndna leik og staðan var síðan orðin 3-1 fyrir Anzhi Tallinn eftir tæpar sjö mínútur. Juan Manuel Torres jafnaði metin í 1-1 á 4. mínútu með fyrsta marki Víkinga í Evrópukeppninni og tvö mörk frá Eyþóri Helga Birgissyni og eitt frá Antonio Jose Espinosa Mossi sáu til þess að staðan var 4-4 í hálfleik. Eistarnir komust í 4-5 í byrjun seinni hálfleiks en Víkingar skoruðu næstu þrjú mörk (Mossi 2 og Brynjar Kristmundsson) og það var síðan Eldar Masic sem kom liðinu í 8-6 á lokamínútunni áður en Anhi minnkaði muninn í lokin. Einar Hjörleifsson, markvörður Víkings, varði sextán skot í þessum leik og var því betri en enginn í liði Ólafsvíkinga. Þriðja liðið í riðlinum er Athina '90 frá Grikklandi. Sigurvegari riðilsins kemst í aðalkeppnina og mun þá leika í Rúmeníu í riðli með liði frá Aserbaídsjan, Belgíu ásamt heimamönnum.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Eyðileggur íþróttina“ Sport „Mér líður eins og ofurkonu núna“ Sport „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Körfubolti Gylfi: „Erfitt að lenda undir eftir tíu mínútur“ Fótbolti Þrótturum mistókst að komast á toppinn Íslenski boltinn Fyrstur til að vinna fjörutíu titla með einu félagi Fótbolti Uppgjörið: Víkingur-FC Thun 3-2 | Evrópudeildardraumurinn úti Íslenski boltinn Uppgjörið: ÍBV-Stjarnan 3-2 | Eyjakonur upp í þriðja sætið Íslenski boltinn Uppgjörið: Nordsjælland – Valur 5-0 | Ekki léttir í lund í Kaupmannahöfn Íslenski boltinn Íslendingaliðin Twente og Midtjylland brunuðu áfram í Evrópu Fótbolti Fleiri fréttir Markaveisla í toppslagnum og æsispennandi toppbarátta Þrótturum mistókst að komast á toppinn Uppgjörið: ÍBV-Stjarnan 3-2 | Eyjakonur upp í þriðja sætið Uppgjörið: Víkingur-FC Thun 3-2 | Evrópudeildardraumurinn úti Uppgjörið: Nordsjælland – Valur 5-0 | Ekki léttir í lund í Kaupmannahöfn Elvis kominn í Bítlabæinn Stelpurnar tóku yfir Akureyri Hnéhlífarnar nauðsynlegar er teymi Víkings hleypur fyrir Ingvar Fögnuðu sigri og tilkynntu Úlfu Dís eftir leik Öll lið lenda í þessu Uppgjörið: Breiðablik - Grindavík/Njarðvík 1-0 | Katelyn Duong hetja Blika Dagný Brynjars snýr aftur í fótboltann Uppgjörið: Þróttur-Valur 3-2 | Fyrsti sigur Þróttar í 75 daga Uppgjörið: Fram-FH 4-6 | Ótrúleg markasúpa á Lambhagavelli Fékk atvinnutilboð erlendis og hættir með kvennalið Keflavíkur Þórsarar fá annan Víking norður Þróttarar fá Björgeyju Njálu aftur heim Keflvíkingar bæta við sig Króata Staðfestir brottför Gunnars: „Einn besti varnarmaður frá upphafi“ Ásdís Karen til FH Um ótrúlegt met KR: „Langskemmtilegustu leikirnir“ Martröðin í Kasakstan þjappaði Blikum saman Sjáðu öll 64 mörk KR í sumar Sveinn Aron spilar með Víkingi eins og afi sinn „Búið að gerast á frekar fyndinn hátt hjá mér síðustu ár“ Stúkumönnum fannst ósanngjarnt að reka Conteh út af Sjáðu KR bæta markametið gegn Fram Kennie: Við töpuðum leiknum á fyrstu 25 mínútunum „Ætlaði þetta að vera einn af þessum dögum?“ Ekkert gengur hjá Haukum eftir komu Söru Bjarkar Sjá meira