Börn lenda oftar í alvarlegum slysum Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 13. maí 2013 10:00 Herdís L. Storgaard „
Alvarlegum slysum á leiksvæðum hefur fjölgað mjög á undanförnum þremur árum á tímum sparnaðar, einkum á leikskólalóðum. Sem betur fer hafa ekki orðið höfuðáverkar en dæmi eru um að börn hafi lærbrotnað á leikskólalóð. Milta sprakk í dreng við fall úr leiktæki á grunnskólalóð. Undirlagið var ekki rétt og alltof þunnt. Börn hafa líka lærbrotnað.“ Þetta segir Herdís L. Storgaard, starfsmaður landlæknisembættisins, en Herdís hefur um árabil barist fyrir bættu öryggi á leiksvæðum. Samkvæmt upplýsingum Umhverfisstofnunar var í fyrra gerð reglubundin árleg aðalskoðun af faggiltum aðila á aðeins 10 prósentum leiksvæða allra leik- og grunnskóla landsins. Framkvæma á yfirlitsskoðun daglega þar sem hættur eru fjarlægðar. Rekstrarskoðun á að framkvæma fjórum sinnum ári af viðhaldsdeild ábyrgðaraðila. Mörgum rekstraraðilum þykir yfirlitsskoðun og rekstrarskoðun nægja, að því er Katrín Hilmarsdóttir, sérfræðingur Umhverfisstofnunar, greindi frá í Fréttablaðinu í síðustu viku. Herdísi finnst að rýmka megi reglurnar um skoðun leiksvæða. „Mér finnst í lagi að framkvæma aðalskoðun sjaldnar en einu sinni á ári þegar menn hafa sýnt fram á að allt sé komið í lag. Ákvæðið um aðalskoðun var sett í reglugerðina um leiktæki og leiksvæði vegna þess að menn létu ekki framkvæma rekstrarskoðun. Mönnum hafa þótt kröfurnar íþyngjandi en sveitarfélögin verða að átta sig á að þau borga ekki kostnaðinn vegna slysa. Hann er greiddur úr sameiginlegum sjóðum.“ Þörf er á samræmdri rekstrarskoðun leiksvæða, að mati Herdísar. „Það er mjög misjafnt eftir sveitarfélögum hversu vel rekstrarskoðun er framkvæmd. Það þyrfti að útbúa gátlista þannig að þetta yrði sambærilegt um allt land. Ef rekstrarskoðun er framkvæmd á réttan hátt er í raun óþarfi að framkvæma hana fjórum sinnum á ári á milli aðalskoðana.“ Herdís kveðst hafa fengið þau svör hjá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu að endurskoða eigi reglugerðina um öryggi leiksvæða um leið og gefin hafi verið út öryggishandbók fyrir sundstaði í haust. „Þá þarf einnig að taka tillit til þeirra nýjunga sem hafa orðið. Það eru komin mörg innanhússleiksvæði sem engin reglugerð nær til. Það hafa orðið slys á þessum stöðum.“
Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Máttu tæma lónið Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira