Svanurinn Örn eltir bíla eins og hundur Karen Kjartansdóttir skrifar 22. júní 2013 19:20
Þriggja ára svanur með bílaáhuga, lítill hrafnsungi sem snæðir egg þótt hann búi í sátt með hænsnum, dúfur og endur og fleiri skepnur lifa í sátt og samlyndi í öruggri umsjá tólf ára drengs í Borgarfirði. Fréttamaður Stöðvar 2 fór og kannaði þessa búskaparhætti. Á bænum Geldingaá í Borgarfirði er sérkennilegur en einkar blómlegur búskapur. Þar heldur tólf ára drengur að nafni Markús Hrafn Hafsteinsson fjölda dýra. Eftirlætið hans er svanurinn Örn sem Markús ungaði út fyrir þremur árum en auk hans heldur hann endur, dúfur, hænur, hrafnsunga og nokkrar kindur. Guðný Helgadóttir, móðir hans, segir Markús einkar duglegan reyndar vilji hann varla bregða sér af bæ heldur vera með skepnunum sínum. „Hann er meira eins og hundur, eltir bíla og ræðst á þá ef þeir eru fyrir honum," segir Markús þegar hann er beðinn um að lýsa félaga sínum álftinni Erni. Hrifningin er gagnkvæm því Örn hefur elt skólarútuna og komið í skólann á eftir Markúsi, þá þurfti Guðný, húsmóðirin á bænum að bjarga málunum. „Hann var eitt sinn kominn inn og við fórum og sóttum hann. Við höfum þurft að sækja hann um allt á bílnum út um allar sveitir," segir Guðný en bætir við að Erni þyki fremur gaman að þessum bílferðum enda hafi hann sérlega mikinn bílaáhuga. Sá áhugi kostaði hann reyndar flugfjaðrinar í bili því hann var farinn að skapa hættu út á þjóðvegi þar sem honum þótti gaman að fara og breiða út vænghafið til að stöðva umferð til beggja átta.Nánar er hægt að fræðast um Markús og Örn í myndskeiðinu sem fylgir þessari frétt.
Mest lesið Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Innlent Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Innlent Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Erlent Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Innlent Stefán Einar og Diljá Mist mæta Helgu Völu og Baldri Innlent Kafari handtekinn vegna Nord Stream-skemmdarverkanna Erlent Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Innlent Eiga eftir að taka umsækjendur í viðtöl Innlent Fleiri fréttir „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mæta Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Eiga eftir að taka umsækjendur í viðtöl Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Hin hliðin ljúgi að landsmönnum „Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið birtir útreikningana Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Sjá meira