"Ljótustu lygar sem til eru“ Hödd Vilhjálmsdóttir skrifar 22. júní 2013 18:50
Maður sem borinn var sökum um að hafa beitt dóttur sína kynferðislegu ofbeldi segir heiminn hafa hrunið þegar ásakanirnar komu fram. Maðurinn stóð fyrir nokkrum árum í harðvítugri forræðisdeilu við barnsmóður sína og sakaði hún hann í miðri deilunni um að hafa beitt dóttur þeirra kynferðislegu ofbeldi. „Heimurinn hrundi bara,“ segir maðurinn, en vegna hagsmuna stúlkunnar birtir fréttastofa hvorki nafn né andlit hans. Hann segir það vera áralanga vinnu að vinna sig út úr svona máli og þakkar fyrir að hafa verið í góðu jafnvægi andlega þegar málið kom upp. Hann hafi því verið betur í stakk búinn til að takast á við það. Í kjölfar viðtala við stúlkuna í Barnahúsi lét lögregla málið falla niður, en í gögnum úr einu viðtalinu kemur fram að stúlkan sagði móður sína hafa sagt sér að segja lögreglu að faðir hennar hafi brotið á henni kynferðislega. Aðspurð sagðist stúlkan aldrei hafa orðið fyrir slíku ofbeldi. „Dóttir mín er búin að vera gimsteinninn minn frá því hún fæddist í þennan heim. Mér finnst menn sem gera svona bara mega fara sína leið. Þetta er bara viðbjóður. Ég skil ekki hvað er hægt að sjá kynferðislegt í börnum.“ Hæstiréttur hefur dæmt föðurnum forræði yfir dóttur sinni. Hann segir að góð fjölskylda og góðir vinir hafi hjálpað honum í gegnum þetta erfiða verkefni. „Mér finnst þetta orðið alltof algengt að foreldrar noti börnin sín sem eggvopn í forræðisdeilum. Þetta er vanvirðing við fjölskyldur og börn sem sannarlega lenda í því að vera beitt kynferðislegu ofbeldi. Þetta eru ljótustu lygar sem til eru.“
Mest lesið Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Fleiri fréttir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik Sjá meira