Formaður Landverndar: "Við skulum bara vona að þetta hafi verið byrjendamistök“ Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar 27. maí 2013 10:53 Guðmundur Hörður Guðmundsson, formaður Landverndar, segir ummæli forsætisráðherra hafa verið blauta tusku í andlit náttúruverndarfólks. „
Þetta kemur í rauninni bara í kjölfarið af yfirlýsingum forsætisráðherra um helgina, þar sem hann segir umsagnir um rammaáætlun séu byggðar á fjöldapósti frá umhverfissinnum“, segir Guðmundur Hörður Guðmundsson, formaður Landverndar. Hann segir ummælin hafa verið blauta tusku í andlit náttúruverndunarfólks. Umhverfissinnar afhenda forsætisráðherra og umhverfisráðherra þær umsagnir um rammaáætlun sem bárust til Alþingis og ráðuneyta á morgun kl 17. Einnig verður þeim afhent áskorun um að draga til baka yfirlýsingar um að fleiri svæði verði færð í virkjanaflokk rammaáætlunar. Yfir 1000 manns hafa nú þegar boðað komu sína á viðburðinn í gegnum facebook. Guðmundur segir augljóst að forsætisráðherra hafi kynnt sér málið illa og að ummæli hans séu mikill misskilningur. Umsagnirnar hafi meðal annars borist frá þrettán umhverfisverndarsamtökum, Samtökum ferðaþjónustunnar, Verndarsjóði villtra laxastofna, Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur og Hveragerðisbæ. Að baki þeim liggi mikil og vel ígrunduð vinna. „Það er full ástæða til að bregðast við og leiðrétta þennan misskilning. Við ætlum að mæta og afhenda honum umsagnirnar svo hann geti kynnt sér gögnin og orðið betur upplýstur um afstöðu félagasamtaka og einstaklinga til málsins“, segir Guðmundur sem vonast til að yfirlýsingarnar verði dregnar í land. „Við skulum bara vona að þetta hafi verið byrjendamistök.“
Mest lesið Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Innlent Skjálftahrina úti af Reykjanesi Innlent Skothvellir við Hvíta húsið Erlent Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Erlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Innlent Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Innlent Fleiri fréttir Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Sjá meira