Verslunarstjóri hljóp uppi þjóf Brjánn Jónasson skrifar 24. júlí 2013 16:00 Þjófurinn sem verslunarstjóri Bónus hljóp uppi var með þýfi að andvirði tæplega 10 þúsund króna úr versluninni. Fréttablaðið/vilhelm
Verslunarstjóri í Bónus elti uppi mann sem hann sá stela úr verslun sinni, og hljóp hann uppi með lögregluna í símanum. Maðurinn reyndist hafa stolið úr fleiri verslunum. Lögregla handtók manninn eftir að verslunarstjórinn stöðvaði för hans, en atvikið átti sér stað síðastliðinn fimmtudag. Maðurinn var með þýfi úr Bónus að andvirði tæplega 10 þúsund króna. Hann henti auk þess frá sér á flóttanum poka með fatnaði sem hann játaði að hafa stolið úr annarri verslun. Maðurinn er vímuefnaneytandi sem viðurkenndi við yfirheyrslu hjá lögreglu að hann hafi ætlað að skipta á vörunum og fíkniefnum. Lögreglan telur hann fjármagna fíkniefnaneyslu sína meðal annars með þjófnaði úr verslunum. Maðurinn hefur einnig játað fjölda sambærilegra brota. Hann hefur til dæmis játað að hafa stolið bakpoka af ferðamanni, tveimur bjórum úr ÁTVR og 100 þúsund króna farsíma úr símabúð. Þá er hann einnig grunaður um innbrot í hjólhýsi, en neitar sök í því máli. Hann á langan sakaferil að baki. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fór fram á gæsluvarðhald yfir manninum til 16. ágúst þar sem talið var líklegt að hann bryti af sér aftur. Héraðsdómur Reykjavíkur féllst á kröfuna fyrir helgi, og Hæstiréttur hefur nú staðfest þá niðurstöðu.
Mest lesið „Ætlum að sækja að olíufélaginu sem heldur þessari slátrun gangandi“ Innlent Telur aðgerðarsinna hér heima vinna með Watson Innlent Ýtukarl á áttræðisaldri er enn að bæta vegina Innlent Vigdís kíkti í kaffi til Kristrúnar Innlent „Farðu nú að hætta þessu þvaðri viðrinið þitt“ Innlent Reiðin magnast í Venesúela Erlent Tvö hundruð prósent fleiri tilkynningar um vændi Innlent Lokar fyrir aðgengi að Reykjafossi og Fossalaug Innlent Hæstiréttur Bandaríkjanna hafnar áfrýjunarbeiðni Trumps Fréttir Gagnrýnir að skipinu hafi ekki verið vísað frá Innlent Fleiri fréttir Fara fram á sextán ár yfir Ming Dræm laxveiði: „Menn spá ekki nema spáin sé góð“ Tvö hundruð prósent fleiri tilkynningar um vændi „Ætlum að sækja að olíufélaginu sem heldur þessari slátrun gangandi“ Öryggisbrestur hjá héraðssaksóknara til Persónuverndar Lýsa yfir þungum áhyggjum af notkun gervigreindar við tónlistarsköpun Ýtukarl á áttræðisaldri er enn að bæta vegina Með kylfur og mikið magn vímuefna Telur aðgerðarsinna hér heima vinna með Watson Segir ekki tilefni til að endurskoða lyfjaakstursmál síðustu ára Vigdís kíkti í kaffi til Kristrúnar Varamaður á Ísafirði verður sveitarstjóri Súðavíkur Orðinn Háskóli Íslands á Hólum Gagnrýnir að skipinu hafi ekki verið vísað frá Svavar Pálsson ráðinn sveitarstjóri Húnabyggðar „Ekkert sérstaklega ánægð“ þegar hún sá hnífinn Margrét Kristín skipuð lögreglustjóri á Suðurnesjum „Við verðum bara að horfast í augu við smæð okkar“ Lokar fyrir aðgengi að Reykjafossi og Fossalaug Gagnrýnir Landhelgisgæsluna vegna Bandero og ýtukarl á áttræðisaldri „Allir eru reiðubúnir að hætta á handtöku“ Fósturfaðirinn áfram í gæslu Leiðrétta rangar kröfur um kílómetragjald af seldum bílum „Hlægilegt þvaður gegn lýðræði!“ Handtekinn í Reykholti vegna kannabisræktunar Bað um íslensku á Hard Rock en kvöldið endaði hjá lögreglu Fær ekki áheyrn í Hæstarétti eftir að hann kallaði konu „svertingjatussu“ Þorgerður varar ESB við nýjum aðildarskilmálum Rigningu spáð í Reykjavík alla vikuna og fólk á leið austur „Ræddum að þetta gæti verið kveðjugjöf“ Sjá meira