"Hún er virkilega hrædd" Erla Hlynsdóttir skrifar 25. janúar 2013 18:34
Faðir sjö ára stúlku sem var rænt og káfað á henni, er ósáttur við að maðurinn sé ekki í varðhaldi. Hann segir dóttur sína hrædda við manninn, sem býr í næstu götu við þau. Hæstiréttur staðfesti í gær úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að hafna kröfu lögreglunnar um framlengt gæsluvarðhald yfir manninum. Stúlkurnar voru í Krónunni þar sem þær hnupluðu sælgæti, þær gengu síðan yfir götuna og settust í strætóskýli. Maðurinn sá stelpurnar í Krónunni í Rofabæ og fylgdist með þeim fara í strætóskýlið. Hann gekk þar til þeirra, laug því að hann væri starfsmaður verslunarinnar og sagði að þær yrðu að koma með honum. Stelpurnar, sem báðar eru sjö ára, settust í aftursæti bifreiðar hans, hann ók með þær nokkurn spöl og skammaði þær fyrir að hafa hnuplað sælgætinu. Hann keyrði með þær upp að Rauðavatni þar sem hann stöðvaði bílinn. Þar settist maðurinn afturí hjá stelpunum, káfaði á þeim utan klæða og hætti ekki fyrr en önnur þeirra fór að gráta. Hann keyrði þær þá aftur til baka. Lögreglan lýsti eftir manninum í fjölmiðlum, hann gaf sig þá sjálfur fram og játaði brotin. Hann var stuttlega í haldi en síðan sleppt þrátt fyrir kröfu lögreglu um að hann væri lengur í varðhaldi þar brotið gæti fallið undir lagagrein um barnsrán, en refsing fyrir það er allt að 16 ára fangelsi. Faðir annarrar stúlkunnar segist mjög ósáttur við málsmeðferð. „Það er frekar óþægilegt að vita af manninum búandi hérna í hverfinu og alls ekki langt frá heimilinu okkar, það er stutt í skóla. Fyrir þessi brot þá finnst mér hiklaust að menn eigi að sitja lengur í varðhaldi og jafnvel fram að dómi," segir faðirinn. Honum finnst almennt tekið allt of létt á kynferðisbrotum gegn börnum og finnst óskiljanlegt að refsiramminn sé ekki að fullu nýttur. „Hún er heppin miðað við mörg önnur börn, mjög heppin. En hún er hrædd, hún er virkilega hrædd og hún er hrædd eftir að hún les um það að hann sé laus - enn hræddari," segir faðirinn.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Innlent Berserksgangur á gististað Innlent Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Erlent Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Innlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira