Lífið

Börnin skila sigrinum

Bjarki Ármannsson skrifar
Haraldur Freyr og Heiðar Örn hafa ekki gleymt ógöngunum árið 2003.
Haraldur Freyr og Heiðar Örn hafa ekki gleymt ógöngunum árið 2003. Fréttablaðið/Anton
Hljómsveitin Pollapönk komst á dögunum áfram í undankeppni Eurovision með lagið Enga fordóma. Pollapönk er meðal annars skipuð fyrrverandi meðlimum rokksveitarinnar Botnleðju, en þeir hafa ekki gleymt því þegar sú hljómsveit komst næstum því áfram í lokakeppnina í Lettlandi fyrir tíu árum síðan.

„Við skíttöpuðum,“ segir Haraldur Freyr Gíslason, meðlimur Pollapönks, en Botnleðja lenti á sínum tíma í öðru sæti undankeppninnar með lagið Eurovísa á eftir Birgittu Haukdal. „Þetta er okkar versta tap á ferlinum.“

Haraldur segir að marga mánuði á eftir hafi meðlimir Botnleðju velt því fyrir sér hvað fór úrskeiðis.

„Við vorum búnir að greina þetta í drep og skrifa margar skýrslur,“ segir hann. „Þá áttuðum við okkur á því að það vantaði hjá okkur grunninn. Hús verða að vera byggð á góðum grunni og okkar bara var ekki nógu traustur.“

Að sögn Haraldar lögðu meðlimir sveitarinnar á ráðin um að taka aftur þátt og sigra að tíu árum liðnum. Haraldur og Heiðar Örn Kristjánsson stofnaðu í millitíðinni hljómsveitina Pollapönk, „markvisst til að ná til yngri hlustenda,“ sem hefur síðan gefið út þrjár breiðskífur.

„Elstu aðdáendur Pollapönks eru núna allir komnir með síma,“ segir Haraldur, handviss um að þessi aukni liðsstyrkur muni skila sér í sigri í ár.

„Nú náum við til svo marga. Við höfum náttúrulega líka gömlu aðdáendur Botnleðju. Þeir hafa ekki fyrirgefið neitt.“

Haraldur segir svo sveitina hafa sent sitt allra besta lag í keppnina. Hafa meðlimir Pollapönks þá engar áhyggjur af gengi sínu þetta árið?

„Við höfum sko mestar áhyggjur af því hvar við ætlum að halda keppnina árið 2015. En það er ekki búið að byggja hótelið við hliðina á Hörpunni, þannig við getum bara hent upp stóru húsi þar.“

??? „Þá áttuðum við okkur á því að það vantaði hjá okkur grunninn. Hús verða að vera byggð á góðum grunni og okkar bara var ekki nógu traustur.

Haraldur Freyr Gíslason

- bá






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.