Ætla ekki að prófa "christal meth” lenda í slag og missa auga Marín Manda skrifar 20. desember 2013 17:00 Saga Garðarsdóttir, leikkona
Nafn? Saga Garðars- og Sigrúnardóttir Aldur? 26 Starf? Leikkona, pistlahöfundur og grínkúnstnerHvern faðmaðir þú síðast? Móður mína.En kysstir? Sigmund Davíð, í öllum mínum villtustu draumum.Hver kom þér síðast á óvart og hvernig? Sambýlismenn mínir, Oddur og Birkir, með því að vera bara ferlega flinkar og fallegar manneskjur sem spila fyrir mig fallega tónlist, borða með mér dýrindis morgunmat og faðma mig þegar ég kem heim.Hvaða galla í eigin fari ertu búin að umbera allt of lengi? Það að ég smjatta og hvað ég er óþolinmóð og tapsár.Ertu hörundsár? Já, því miður. Ég er stöðugt að glíma við hörundsæri mitt og ég er oft hörundsár fyrir hönd dýra. Ég er hins vegar alltaf að æfa mig í að verða betri og stærri manneskja og stefni á 30% lækkun á hörundsæri á næsta ári.Dansarðu þegar enginn sér til? Já, og líka þegar allir sjá til. Ég er ekki mjög klár í því en eftir að ég komst að því að hopp er gjaldgengt dansspor og að dans er mjög teygjanlegt hugtak vil ég meina að ég dansi í gegnum lífið.Hvenær gerðirðu þig síðast að fífli og hvernig? Hugmynd mín um fíflaskap er loðin. Allt svona að sulla niður á sig, prumpa í fjölmenni og fara óvart ber að neðan í virðulega veislu er bara fyndið og skemmtilegt. Og þannig fíflalegheitum á að fagna. Svo er til annar fíflaskapur eins og að skera niður til þróunarmála, upphefja vini sína á kostnað annarra og ljúga. Þannig fíflaskapur er mér ekki að skapi. Ég varð síðast uppvís að skrökvi þegar ég sagði sambýlismönnum mínum að ég gæti ekki vaskað upp af því að ég væri nýbúin að tattúa á mig sleeves. Þeir sáu fljótt í gegnum mig.Tekurðu strætó? Nei, sem er óvenjulegt því ég er ekki með bílpróf. Ég hleyp og hjóla milli staða og reiði mig á góðmennsku vina minna og ókunnugra bílstjóra sem stundum taka mig upp í.Hvað ætlarðu alls ekki að gera um helgina? Prófa „christal meth”, lenda í slag og missa auga. Það færi alveg með mömmu svona rétt fyrir jólin.
Mest lesið Úlfurinn át þá alla Gagnrýni Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Lífið Hvað veistu um… pitsur? Lífið Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Lífið Hætta við að hætta við að hætta við Tónlist Hilmir Snær svarar gagnrýnendum Menning Ómetanlegt fyrir samkynhneigðan strák í skápnum Bíó og sjónvarp Sturluð skvísulæti í stórafmæli Tíska og hönnun Hræðilegir dagar í Partylandi Lífið samstarf Sjálfið okkar: Hvers vegna kaupum við nammi við kassann síðdegis? Áskorun Fleiri fréttir Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Sjá meira