Öll fjölskyldan á sviði 18. desember 2013 09:15 „Þær syngja allar dásamlega,“ segir Sigurbjörn Daði um dætur sínar. „
Auðvitað eru það forréttindi að fá að stíga á svið með börnunum sínum,“ segir Sigurbjörn Daði Dagbjartsson sem heldur jólatónleika á skemmtistaðnum Bryggjunni í Grindavík á sunnudaginn. Sigurbjörn mun þar koma fram ásamt tveimur dætrum sínum og stjúpdóttur, auk þess sem bræður hans og frændur munu mæta á sviðið. Sannkölluð fjölskylduhátíð. „Undanfarin ár höfum við farið á elliheimilið í bænum og báða leikskólana fyrir jólin og spilað og sungið. Það hefur fært manni jólaandann beint í æð. En í ár datt okkur í hug að stækka við okkur og ákváðum að halda bara tónleika,“ segir Sigurbjörn Daði en bætir því við að fjölskyldan ætli samt sem áður að heimsækja elliheimilið og leikskólana þetta árið. Dætur hans eru níu, fimmtán og nítján ára. Hann segir þær afar góða söngvara. „Þær syngja allar dásamlega. Þær radda mikið og gera það ótrúlega vel. Ég er meira bara partíspilari, þær eru miklu betri en ég,“ segir hann stoltur. Aðalstarf Sigurbjörns er sjómennska en hann notar tómstundir sínar í gítarspil. „Ég er í tveimur hljómsveitum, Backstabbing Beatles ásamt bræðrum mínum og frændum, og Geimförunum, sem munu einmitt halda ball á milli jóla og nýárs í Salthúsinu í Grindavík. Það ball er vel sótt, þetta verður sextánda skiptið sem við höldum þessa tónleika,“ útskýrir Sigurbjörn.Foreldrar Sigurbjarnar eru mikið söngfólk að hans sögn. Fjölskyldan er mikið í tónlist.Bræður hans úr Backstabbing Beatles, þeir Gauti og Einar, munu stíga á svið á jólatónleikunum og taka lag sem þeir sömdu fyrir síðustu jól og var spilað á Rás 2. Sigurbjörn segir að þrátt fyrir að allir þessir fjölskyldumeðlimir og ættingjar séu í tónlist hafi ekki verið lögð nein sérstök áhersla á það í uppeldinu. „Mamma og pabbi spila til dæmis ekki á hljóðfæri. En þau eru reyndar mikið söngfólk. Þetta gæti komið út frá því. Ég byrjaði bara að syngja með plötum þegar ég var ungur og svo fór maður að prófa sig áfram á gítarnum. Þetta er auðvitað bara áhugamál,“ segir sjómaðurinn Sigurbjörn sem er einmitt á sjó um þessar mundir og kemur heim rétt fyrir tónleikana. „Við erum öll að æfa okkur hvert í sínu lagi núna og svo fáum við einhverja tvo daga til æfa okkur saman þegar ég kem í land,“ útskýrir Sigurbjörn.Tónleikarnir fara fram sunnudaginn 22. desember á skemmtistaðnum Bryggjunni í Grindavík klukkan 21.
Mest lesið Úlfurinn át þá alla Gagnrýni Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Lífið Hvað veistu um… pitsur? Lífið Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Lífið Hræðilegir dagar í Partylandi Lífið samstarf Hætta við að hætta við að hætta við Tónlist Hilmir Snær svarar gagnrýnendum Menning Gengst við dulnefninu en vill samt ekki kannast við það Menning Ómetanlegt fyrir samkynhneigðan strák í skápnum Bíó og sjónvarp Sturluð skvísulæti í stórafmæli Tíska og hönnun Fleiri fréttir Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Sjá meira