Sport

Kolbeinn Tumi fékk Hvataverðlaun ÍF

Frá vinstri: Sveinn Áki Lúðvíksson, formaður ÍF. Kolbeinn Tumi og Jón Margeir.
Frá vinstri: Sveinn Áki Lúðvíksson, formaður ÍF. Kolbeinn Tumi og Jón Margeir. mynd/daníel
Kolbeinn Tumi Daðason, íþróttafréttamaður hjá Fréttablaðinu, hlaut í gær Hvataverðlaun Íþróttasambands fatlaðra en þau voru þá veitt í fyrsta sinn.

Hvataverðlaunin eru veitt einstaklingum, félagasamtökum, stofnun, fyrirtæki eða öðrum aðilum sem á framsækinn hátt hafa unnið í þágu íþróttastarfs fatlaðra á viðkomandi ári.

Kolbeinn Tumi frumsýndi heimildarmynd sína „Ef ég hef trú á því þá get ég það“ á árinu 2013 en þar er fylgst með sundkappanum Jóni Margeiri Sverrissyni á leið sinni að verða Ólympíumeistari í 200 metra skriðsundi þroskahamlaðra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×