Lífið

Gaf bókasafninu brúðargjafir sínar

Freyr Bjarnason skrifar
Edyta Angieszka Janikula færði Bókasafni Hafnarfjarðar átta hundruð bækur að gjöf.
Edyta Angieszka Janikula færði Bókasafni Hafnarfjarðar átta hundruð bækur að gjöf. fréttablaðið/valli
Edyta Angieszka Janikula, 27 ára Pólverji sem hefur búið á Íslandi í sjö ár, færði Bókasafni Hafnarfjarðar um átta hundruð bækur að gjöf fyrir skömmu.

Bækurnar fékk hún flestar í brúðkaupsgjöf er hún gifti sig í heimabæ sínum í Póllandi í sumar. Einnig gaf hún bókasafninu eitthvað af pólskri tónlist

Edyta fékk starf á bókasafninu í apríl síðastliðnum í gegnum svokallaðan liðsstyrk, sem er atvinnuátak á vegum Hafnarfjarðarbæjar. Síðasti dagur hennar í starfinu var á föstudaginn en áður en hún fékk vinnuna á bókasafninu hafði hún starfað við ræstingar, meðal annars í utanríkisráðuneytinu.

„Ég bað fólk um að gefa mér ekki blóm eða eitthvað slíkt heldur bara bækur. Ég keypti líka bækur og náði í bækur heim til mín,“ segir Edyta, spurð út í þessa óvenjulegu bókagjöf. „Mig langar að hafa fleiri pólskar bækur í boði á bókasafninu og ég elska þennan vinnustað.“

Um viðbrögð starfsfólks bókasafnsins við bókagjöfinni segir Edyta: „Það var rosalega ánægt. Það vildi borga mér fyrir þær en ég vildi engan pening.“

En hvað með eiginmann þinn, var hann sáttur við að fá enga brúðkaupsgjöf? „Nei,“ segir hún og hlær. „Ég gaf honum köfunargræjur. Það var brúðkaupsgjöfin mín til hans, svo að hann fengi einhverja gjöf.“

Edyta hefur einnig lesið upp úr pólskum bókum fyrir börn á bókasafninu á laugardögum klukkan 13 og síðast komu fjórtán krakkar og hlýddu á lesturinn. Hún kveðst ætla að halda því áfram, enda enginn annar staður, að því er hún best veit, sem býður upp á slíka þjónustu.

Hún átti fund með sendiherra Póllands á Íslandi á föstudaginn. Þar fékk hún 45 bækur og sex hljóðbækur að gjöf sem hún fór með á Bókasafn Hafnarfjarðar. „Sendiráðið vill halda áfram samstarfi við mig. Sendiherrann var ánægður og sagði að það vantaði fleira fólk eins og mig,“ segir Edyta, spurð hvernig fundurinn hefði gengið.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.