Yfir 500 kynferðisbrot kærð frá áramótum Valur Grettisson skrifar 12. september 2013 07:00 Yfir hundrað kærur bárust lögreglu á þremur fyrstu mánuðum ársins vegna kynferðisofbeldis gegn börnum.
Alls voru 517 kynferðisbrot kærð til lögreglunnar á fyrstu átta mánuðum ársins samkvæmt upplýsingum frá Ríkislögreglustjóra og er það metfjöldi. Til samanburðar þá bárust rúmlega 140 kærur til lögreglu vegna kynferðisofbeldis á öllu síðasta ári. Þá hafa alls 178 kærur borist til embættis ríkissaksóknara frá janúar, en það eru nokkuð fleiri mál en hafa borist embættinu síðustu tvö ár. Óhætt er að segja að holskefla kynferðisbrota hafi verið kærð til kynferðisafbrotadeildar lögreglunnar, eftir umfjöllun fréttaskýringarþáttarins Kastljóss um barnaníðinginn Karl Vigni Þorsteinsson í kringum síðustu áramót. Þetta sést glögglega í bráðabirgðartölum ríkislögreglustjóra sem Fréttablaðið hefur undir höndum, en 92 kynferðisbrot voru kærð í janúar einum, þegar umfjöllun miðilsins fór sem hæst. Nokkuð ber á milli í kærum til lögreglu og málum sem enda svo að lokum hjá ríkissaksóknara. Þannig er búið að ákæra í 29 málum frá janúar og fella niður þrjú af þeim 124 málum sem bárust embættinu frá áramótum. Það er því búið að ákæra í um sex prósent mála sem hafa verið kærð til lögreglu frá áramótum. Staðan þótti svo alvarleg á fyrri hluta þessa árs að Jóhanna Sigurðardóttir, fyrrverandi forsætisráðherra, setti á fót sérstakan starfshóp fjögurra ráðuneyta undir formennsku Ágústs Ólafs Ágústssonar til að bregðast við vandanum. Starfshópurinn skilaði af sér viðamikilli skýrslu með 27 tillögum til úrbóta en af þeim voru fimmtán tillögur settar í forgang. Þar var meðal annars gert ráð fyrir ellefu nýjum stöðugildum til að mæta brýnni þörf. Ríkisstjórnin ákvað að verja 79 milljónum króna til að fjármagna forgangsaðgerðir til að bregðast við neyðarástandi í kynferðisbrotum gegn börnum eins og það var orðað í apríl síðastliðnum. Þrátt fyrir mikinn fjölda kæra sem hafa borist embætti ríkissaksóknara á árinu þá er þetta langt því frá að vera mesti fjöldinn sem hefur borist embættinu. Árið 2008 bárust 258 kynferðisbrot til embættisins. Þá var ákærutíðni með svipuðu móti og síðustu ár, eða um helmingur mála. Þá má búast við því að stór hluti kæra sem bárust lögreglu vegna kynferðisafbrota berist ríkissaksóknara á næsta ári.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Fleiri fréttir Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Sjá meira