Það er enn töframáttur í fótum Eiðs Smára Henry Birgir Gunnarsson skrifar 31. ágúst 2013 06:00 Eiður Smári Guðjohnsen. Mynd/Daníel
Lars Lagerbäck, landsliðsþjálfari, tilkynnti í gær stóran hóp fyrir komandi leiki gegn Sviss ytra og Albaníu heima. Leikurinn gegn Sviss er næsta föstudag og Albaníu-leikurinn fjórum dögum síðar. Framherjinn sjóðheiti Alfreð Finnbogason er í hópnum en hann er tæpur vegna meiðsla í tá. Eins og staðan er í dag er ólíklegt að hann spili leikinn gegn Sviss. „Það er alltaf neikvætt þegar öflugur leikmaður dettur út. Alfreð hefur verið að spila frábærlega þannig að eðlilega vil ég hafa hann í liðinu eða til taks á bekknum hið minnsta. Lið eins og það íslenska mun alltaf sakna leikmanns eins og Alfreðs,“ segir Lagerbäck en hann býst ekki við því að riðla leikkerfi liðsins þó svo Alfreð verði ekki með. Eiður Smári Guðjohnsen hefur átt mjög góðar innkomur í íslenska liðið upp á síðkastið. Hans innkoma hefur oftar en ekki lyft spili liðsins upp á annað plan. Kemur til greina að vera með Eið í byrjunarliðinu að þessu sinni? „Það er enn töframáttur í fótum Eiðs Smára þó svo hann sé að eldast. Þetta er alltaf spurning um jafnvægið í liðinu en Eiður kemur klárlega til greina í byrjunarliðið. Við Heimir [Hallgrímsson aðstoðarþjálfari] erum að fara yfir leikinn og við vonumst til þess að geta komið Svisslendingum á óvart. Ég vil því ekkert segja um það á þessu stigi hvað við ætlum okkur að gera.“Lars Lagerbäck var íhugull en á köflum léttur á blaðamannafundi íslenska landsliðsins í gær.Mynd/Stefán
HM 2014 í Brasilíu Mest lesið Fór holu í höggi í beinni í sjónvarpinu Golf Nunez farinn frá Liverpool Enski boltinn Japanskur hnefaleikakappi lést eftir bardaga Sport Haaland á skotskónum í sigri Man. City Sport Reiður Geno sendi áhorfanda fingurinn Sport De Gea: Mun aldrei gleyma þessum leik Enski boltinn Shedeur stóð sig vel og fékk hrós frá LeBron Sport Slagsmál stuðningsmanna fyrir utan Ölver: „Allir með grímu fyrir andlitið og réðust á okkur“ Fótbolti Dagskráin: Enski boltinn byrjar og risaleikur í Bestu Sport Enska augnablikið: Mætti sköllóttur á Old Trafford Enski boltinn Fleiri fréttir McLagan framlengir við Framara Björgvin Karl: Settið sem kom að sunnan ekki í Bestu deildar klassa Uppgjör: FHL-FH 0-2 | Þolinmæði vann þraut FH gegn FHL Fékk rautt spjald fyrir að toga í hár mótherja Uppgjörið: Þróttur - Víkingur 2-1 | Heimakonur unnu Reykjavíkurslaginn Galdur orðinn leikmaður KR Á Tryggvi Guðmundsson kannski enn markametið? „Sáum á dómurunum í restina að þeir höfðu eitthvað á samviskunni“ „Ákvað bara að láta vaða“ „Það var góð barátta í okkur og mikil liðsheild“ Uppgjörið: Fram - Breiðablik 1-6 | Ekkert fær Blika stöðvað Uppgjörið: Þór/KA - Valur 1-2 | Mikilvægur sigur gestanna Uppgjör: Stjarnan - Tindastóll 3-0 | Hoppa upp í efri hlutann eftir sannfærandi sigur Fengið nokkur skilaboð eftir skipti frá Val til KR Sjáðu mörkin úr Bestu: Nú er hinn Pedersen bróðirinn farinn að skora líka „Ég var í smá sjokki“ Framari týndi boltanum í miðjum leik og Rikki G var alveg gáttaður Stúkan: Getur KR fallið úr deildinni? „Ég hef aldrei séð Stjörnuna spila svona“ „Ég er mjög þreyttur“ Uppgjörið: Afturelding - Vestri 1-1 | Deila með sér stigunum „Mæli með að dómarar nái þessum hraða með boltann“ Uppgjörið: Fram - Stjarnan 1-1 | Allir ósáttir eftir jafntefli Leiknir selur táning til Serbíu Markametið hans Patricks Pedersen í tölum Sjáðu Pedersen bæta metið og Skagamenn jafna með skrýtnum mörkum Uppgjör: ÍA - Valur 2-2 | Skaginn náði í stig með ótrúlegu marki Hansen hamingjusamur í Víkinni næstu árin Tryggvi þurfti að bíða í 257 daga eftir að bæta metið „Margir sem voru tilbúnir að koma honum fyrir kattarnef fyrir mig“ Sjá meira
Slagsmál stuðningsmanna fyrir utan Ölver: „Allir með grímu fyrir andlitið og réðust á okkur“ Fótbolti
Slagsmál stuðningsmanna fyrir utan Ölver: „Allir með grímu fyrir andlitið og réðust á okkur“ Fótbolti