Viðskipti innlent

Ávallt verið viðloðandi sjávarútveg

Lovísa Eiríksdóttir skrifar
Kolbeinn Árnason Segir að íslensk sjávarútvegsfyrirtæki fái ekki alltaf sanngjarna útreið í umræðunni.
Kolbeinn Árnason Segir að íslensk sjávarútvegsfyrirtæki fái ekki alltaf sanngjarna útreið í umræðunni. Mynd/Arnþór
Kolbeinn Árnason hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ).

„Mér þykir mjög spennandi að taka þátt í því að halda áfram að móta þessa grein sem er undirstöðuatriði í íslensku samfélagi,“ segir Kolbeinn.

Hann bendir á að í starfinu felist margar áskoranir. „Kerfið í kringum sjávarútveginn er umdeilt og umræðan lífleg og hvöss, sem ég held að sé óumflýjanlegt þegar kemur að hagsmunum sem þessum.“

Lengi unnið í þágu sjávarútvegsKolbeinn lauk laganámi frá Háskóla Íslands árið 1997 og hefur unnið störf tengd sjávarútvegi síðan þá.

Eftir útskrift fór hann að vinna sem lögmaður, þar sem hann starfaði í málsvörn fyrir íslenska ríkið um sjávarútveg og kvóta.

Í framhaldi af því starfaði hann í sjávarútvegsráðuneytinu sem skrifstofustjóri í fimm ár og þar á eftir í íslenska sendiráðinu í Brussel, þar sem hann var fulltrúi sjávarútvegsráðuneytisins.

Kolbeinn hefur á undanförnum árum unnið sem framkvæmdastjóri lögfræðisviðs slitastjórnar Kaupþings hf. en einnig átti hann sæti í samninganefnd Íslands í aðildarviðræðum við Evrópusambandið (ESB) og var þar formaður samningshóps um sjávarútvegsmál.

Vann í aðildarviðræðum um ESB sem embættismaðurKolbeinn hefur á undanförnum árum unnið sem framkvæmdastjóri lögfræðisviðs slitastjórnar Kaupþings hf. Einnig átti hann sæti í samninganefnd Íslands í aðildarviðræðum við Evrópusambandið (ESB) og var þar formaður samningshóps um sjávarútvegsmál.

LÍÚ hefur hins vegar alla tíð lýst sig andvígt inngöngu í ESB. „Ég tók þátt í því að starfa fyrir ríkið í aðildarviðræðum við ESB sem embættismaður og vann því eftir þeirri stefnu sem stjórnvöld mörkuðu, algerlega óháð mínum persónulegu skoðunum. Í því starfi var markmiðið og metnaðurinn einfaldlega sá að ná sem allra bestu samningum þannig að þjóðin gæti tekið afstöðu til þeirra og í því ferli sem þar átti að vera,“ segir Kolbeinn en útskýrir þó að ef til þess kæmi að Ísland gengi í ESB yrðu sjávarútvegsmálin grundvallarmálaflokkur og glórulaust væri að Ísland yrði að aðildarríki ef ekki næðust góðir samningar í þeim flokki.

Umræðan eðlileg en ansi hörðÍmynd LÍÚ og félagsmanna í samtökunum hefur oft og tíðum beðið hnekki og samtökin mætt andstöðu úr samfélaginu.

Kolbeinn segir að skoðanir um sjávarútvegsmál á Íslandi muni alltaf verða skiptar og pólitískar. „Ég held að annað væri óeðlilegt þegar um er að ræða málefni sem er eins mikilvægt þjóðarbúinu og raunin er með sjávarútveginn,“ segir Kolbeinn og bætir við að umræða um atvinnugreinina sé nauðsynleg, ekki síst þegar um er að ræða greinar sem byggja á nýtingu auðlinda sem í eðli sínu eru takmarkaðar.

„Það er eitt af því mikilvægasta sem felst í þessu starfi að reyna að ná eins miklum samhljómi í samfélaginu um sjávarútveginn og kostur er og það er klárlega hlutverk LÍÚ að upplýsa fólk og almenning um starfsemi og mikilvægi greinarinnar, ásamt því að taka þátt í samfélagslegri umræðu um hvað megi betur fara.“

Kolbeinn segir að orðræða um sjávarútveg sé hins vegar oft ansi hörð sem mögulega skaðar ímynd samtakanna. „Ég er þeirrar skoðunar að sjávarútvegurinn njóti ekki alltaf sannmælis í umræðunni og að mörg þeirra öflugu fyrirtækja sem starfa á sviði sjávarútvegs og skapa samfélaginu tekjur og störf fái ekki alltaf sanngjarna útreið í umræðunni.“

Hann telur umræðu um sjávarútveginn oft á villigötum í dag, einkum hvað varðar veiðigjaldið, og að slíkt þurfi að laga. „Það þarf að gæta að því að aðferðafræðin og gjaldheimtan í kringum atvinnugreinina séu ekki þannig að það hafi skaðleg áhrif, sem ég held að sé algjörlega ljóst í núverandi kerfi. Við hjá LÍÚ erum tilbúin að leggja okkar af mörkum í þeirri umræðu.“

Kolbeinn segist nú vera að gíra sig upp í starfið. „Nú er ég búinn að gegna starfinu í þrjá daga og þarf ef til vill einhvern tíma í viðbót til þess að setja mark mitt á starfið.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×