Týndi medalíunni langþráðu um leið Stefán Árni Pálsson skrifar 21. ágúst 2013 07:15 Reynsluboltinn Daði Guðmundsson varð loksins bikarmeistari með Fram um helgina. Hann stefnir að því að verða leikjahæsti leikmaður Fram. Fréttablaðið/stefán
Daði Guðmundsson, leikmaður Fram og nýkrýndur bikarmeistari, hefur í gegnum tíðina verið kallaður herra Fram. Framarar urðu bikarmeistarar á laugardaginn eftir magnaðan sigur á Stjörnunni í vítaspyrnukeppni. Þetta var fjórði bikarúrslitaleikurinn sem Daði kom að í Framtreyjunni en fram að leiknum á laugardaginn höfðu þeir allir tapast. Loksins var gullmedalían komin um hálsinn en þar dvaldi hún ekki lengi. Daði náði að týna henni um leið og hann kom inn í búningsklefa og hefur hún ekki fundist enn. „Ég var með medalíuna á mér þegar ég fór inn í klefa en í öllum fagnaðarlátunum hef ég lagt hana frá mér,“ segir Daði Guðmundsson. „Líklega hefur einhver bara óvart stungið henni í töskuna en ég vonast til þess að hún verði komin í leitirnar þegar ég fer á æfingu á eftir,“ segir Daði í gær. „Loksins vann ég þennan bikar og var þetta hápunkturinn á mínum ferli,“ segir Daði. Fyrir bikarúrslitaleikinn árið 2009 gegn Blikum var Daði í byrjunarliðinu en aðeins tæpur í baki. Því var hann sprautaður. Það fór ekki betur en svo að Daði lamaðist í raun í nokkra klukkutíma og gat ekki spilað. Daði hefur tekið þátt í 370 leikjum fyrir Fram en Pétur Ormslev á 372 leiki fyrir félagið. „Mig vantar held ég tvo eða þrjá leiki til að verða leikjahæsti leikmaður í sögu Fram og vonandi hefst það í sumar. Samningur minn rennur út eftir tímabilið en ég hef áhuga á því að vera áfram í Safamýrinni. Vonandi næ ég metinu í ár.“
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ Sport Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Enski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Fótbolti Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ Körfubolti „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson Enski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Enski boltinn Fleiri fréttir Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Sjá meira