Stjörnumenn í dauðafæri Stefán Árni Pálsson skrifar 17. ágúst 2013 07:00 Átta mörk. Hólmbert er markahæstur í Pepsi-deildinni. Fréttablaðið/valli
Stærsti leikur ársins er fram undan í íslenska boltanum og fer hann fram á Laugardalsvelli klukkan fjögur í dag. Þá mætast Fram og Stjarnan í bikarúrslitaleiknum um Borgunarbikarinn. Stjarnan er í úrslitum annað árið í röð en liðið tapaði fyrir KR á síðasta ári. Framarar hafa aftur á móti tapað fjórum bikarúrslitaleikjum í röð og unnu síðast árið 1989 þegar Ríkharður Daðason, þjálfari Framara, var leikmaður liðsins. Stjörnumenn hafa verið sterkari í Pepsi-deildinni á þessu tímabili en það spyr enginn að því þegar í úrslitaleikinn er komið. Margir hallast að því að Garðbæingar vinni sinn fyrsta titil í sögu karlaliðsins. Tómas Ingi Tómasson, aðstoðarþjálfari U-21 árs landsliðs Íslands, og Baldur Sigurðsson, leikmaður KR, eru báðir á því að Stjörnumenn fari með sigur af hólmi í dag. „Það er einhvern veginn mín tilfinning að þetta verði Stjörnusigur í ár,“ segir Baldur í samtali við Fréttablaðið í gær. „Framarar mæta afslappaðri til leiks og byrja betur. Stjörnumenn eiga eftir að vera nokkuð stressaðir og með leikinn frá því í fyrra í huganum. Það mun taka þá tíma að komast í takt við leikinn og þetta verður algjör lykiltímapunktur. Takist Frömurum að skora mark á þessu augnabliki getur allt gerst,“ segir Baldur. KR-ingar hafa byrjað illa síðastliðin tvö ár en samt sem áður farið með sigur af hólmi í báðum úrslitaleikjunum.Stressið kemur í þjóðsöngnum „Það getur verið erfitt að fara inn í svona leik sem sigurstranglegri aðilinn og spennan fyrir leiknum getur í raun snúist upp í allt of mikið stress. Það er ekkert mál að stilla spennustigið í aðdraganda leiksins en um leið og leikmenn ganga út á grasið þá kemur höggið. Menn ganga út á völlinn á rauðum dregli og þjóðsöngurinn fer síðan í gang þar sem menn horfa bara á bikarinn beint fyrir framan sig og full stúka. Þetta er tíminn sem menn þurfa virkilega að búa sig undir.“ „Númer eitt, tvö og þrjú held ég að þetta verði bara rosalega skemmtilegur leikur,“ segir Tómas Ingi Tómasson. „Þetta eru tvö mjög góð sóknarlið, þótt Stjarnan hafi verið að bæta sig mikið varnarlega undanfarið, og ég ætla að leyfa mér að segja að þetta verði mjög opinn og skemmtilegur leikur.“ Tómas Ingi vill meina að það spili mikið inn í að Fram hafi áður unnið titla en það hefur Stjörnunni aldrei tekist. Því mun hungrið vera meira hjá öllum leikmönnum Garðbæinga sem og öllum í kringum liðið. „Núna er dauðafæri fyrir Stjörnuna að brjóta ísinn og henda einum bikar í safnið. Ef það gerist í ár tel ég að Stjarnan verði óstöðvandi í framtíðinni,“ segir Tómas. Framarar hafa eins og áður segir tapað fjórum bikarúrslitaleikjum í röð og nú síðast gegn Blikum árið 2009 eftir vítaspyrnukeppni. „Framarar verða að vera þéttir til baka og stefna síðan að því að taka Stjörnuna á þeirra eigin bragði með hröðum skyndisóknum. Er það kannski „allt er þegar fimm er“ eins og skáldið sagði, maður veit aldrei í boltanum,“ segir Tómas.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ Sport Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Enski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Fótbolti Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ Körfubolti „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson Enski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Enski boltinn Fleiri fréttir Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Sjá meira