Fer ekki á Gay Pride í karlmannsdraggi 9. ágúst 2013 18:00 Kristrún Ösp
Lífið spurði Kristrúnu Ösp Barkardóttur spjörunum úr og komst að því að ef hún væri mjög hörundsár þá væri hún líklegast ofan í einhverri holu í fýlu að eilífu. NAFN? Kristrún Ösp Barkardóttir.ALDUR? 23 ára.STARF? Vinn á frábærum vef, hún.is. Hvern faðmaðir þú síðast? Son minn í morgun.En kysstir? Ætli það sé ekki best að hafa það fyrir mig.Hvaða galla í eigin fari ertu búin að umbera allt of lengi?Ég hef fullt af göllum en ætli það sé ekki hvers og eins að dæma, ég er kannski minna vör við þá. Ég er frekar fljótfær, ef mér dettur eitthvað í hug þá verður það að gerast strax og helst í gær. Svo eftir á að hyggja þá var þetta jafnvel glötuð hugmynd sem ég hefði átt að hugsa betur og líklegast sleppa alveg að framkvæma.Ertu hörundsár? Nei, ég er hreinskilin sjálf svo ég tek því sem sagt er við mig og reyni vanalega að nýta það. Ef ég væri mjög hörundsár þá væri ég líklegast ofan í einhverri holu í fýlu að eilífu.Dansarðu þegar enginn sér til? Dilla mér gjarnan við uppvaskið og tek sporið með syni mínum. Það verður gert þar til honum fer að finnast það asnalegt að dansa með mömmu!Hvenær gerðirðu þig síðast að fífli og hvernig? Við erum mannleg og mér finnst fátt vandræðalegt, reyni frekar að slá upp í grín ef svo kemur til. Svona fyrsta sem mér dettur í hug en það er töluvert síðan. Ég var að labba inn í Hagkaup voða fín í opnum skóm. Renn svo harkalega rétt við innganginn í bleytu á gólfinu svo bandið á skónum slitnaði. Ekki nóg með að ég datt kylliflöt á gólfið heldur varð ég að gera innkaupin í einum skó og hinn fékk að liggja ónýtur í körfunni. Hringirðu stundum í vælubílinn?Sjaldan fyrir sjálfa mig en það fer agalega í taugarnar á mér þegar fólk kvartar yfir kvefi eða þess háttar og þá gjarnan býðst ég til að hringja á bílinn góða.Tekurðu strætó? Nei, hef ekki gert það síðan áður en ég fékk bílpróf, þá tók ég strætó í skólann. Hinsvegar er sonur minn mikill áhugamaður um bíla og finnst strætó mjög merkilegur svo ég hugsa að við prufum að fara rúnt með gulu þrumunni einhvern daginn.Hvað eyðirðu miklum tíma á Facebook á dag? Allt of miklum. Vinnan krefst þess svolítið að vera á Facebook. Svo er það tengt í símanum mínum svo ég fæ skilaboð og slíkt þangað.Lumarðu á einhverju sem fáir vinir þínir vita um þig?Nei ætli það nokkuð, ég er heldur opin manneskja og deili líklegast öllum mínum hugsunum með vinum mínum.Ferðu hjá þér þegar þú hittir fræga eða heilsarðu þeim? Ég heilsa oft þó að ég þekki fólkið ekki en þá finnst mér ég oft þekkja það því ég hef séð það í sjónvarpi eða annars staðar. En ég hef kynnst mikið af frábæru fólki sem telst líklegast frægt þó mér finnist það orð alveg glatað hérna á Íslandi.Hvað ætlarðu alls ekki að gera um helgina? Fara á Gay pride í karlmannsdraggi, verða dauðadrukkin og enda heima með konu.
Mest lesið Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Lífið Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Lífið Nablinn hættur á leikskóla Lífið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Lífið „Ég hef þurft að læra að lifa með því sem ekki verður breytt“ Lífið samstarf Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Keppast um að minnast Stewarts Lífið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Fleiri fréttir Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Halla forseti var ekki heima þegar hann loks skilaði sér á leiðarenda Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Sjá meira