Frænkur á pungnum spila fyrir frændann Kristjana Arnarsdóttir skrifar 2. ágúst 2013 09:00 Stelpurnar í knattspyrnuliðinu Frænkur á pungnum eru klárar fyrir Mýrarboltann. Þær spila til heiðurs Erpi frænda. Fréttablaðið/Arnþór „
Við frænkurnar vorum á Frank Ocean þegar við ákváðum að búa til lið og skella okkur saman á Mýrarboltann. Þá kom hugmyndin að nafninu, Frænkur á pungnum,“ segir knattspyrnukonan Greta Mjöll Samúelsdóttir. Greta er frænka tónlistarmannsins Erps Eyvindarsonar en í einu laga hans lætur hann orðin „frænkur á pungnum“ falla. Frænkur hans tóku þetta til sín og græjuðu búninga fyrir drulluboltann á Ísafirði með yfirskriftinni „Frænkur á pungnum“. „Við erum ekki þessar frænkur sem hann talar um í laginu, við erum þessar frænkur í bókstaflegri merkingu og ætlum að vera á pungnum,“ segir Greta Mjöll og hlær, en búninginn hönnuðu þær stúlkur á miðvikudagskvöldið. „Mamma er svo mikill reddari. Hún fór í apótekið og keypti alls konar drasl. Við fylltum smokka og keyptum einhverja stressbolta til að búa til pung og svo er þetta einhvers konar blanda af nælonsokkum, bómull og gamalli hárkollu. Þetta verður mjög grafískt og flott.“ Hún segir þó að Erpur sjálfur verði fjarri góðu gamni á Mýrarboltanum. „Það er svekkjandi að hann verður ekki á svæðinu. Hann verður í bænum á einhverju tónleikastandi og á Þjóðhátíð. Hann hefði verið alveg rosalega flottur liðstjóri.“ Spurð að því hvort þær ætli ekki að spila til sigurs á Ísafirði, svarar Greta því játandi. „Við erum náttúrulega með eina í liðinu sem hitaði sig upp á EM í knattspyrnu, hana Rakel Hönnudóttur. Við bættum henni inn í frænkuhópinn svona rétt fyrir Mýrarboltann. En í fyrsta sinn ætla ég að reyna að leggja keppnisskapið aðeins á hilluna og reyna að hafa umfram allt gaman,“ segir Greta Mjöll hress að lokum. Sáttur með frænkurnarErpur Eyvindarson var ánægður með framtak frænkna sinna. „Þetta er náttúrulega meiriháttar „legendary“, frænkur á pungnum? Þetta er stórkostlegt, þær eru svo mikil „legend“ þessar frænkur mínar. Ég stend náttúrulega þvílíkt með þeim og verð eiginlega að reyna að koma á Mýrarboltann um leið og ég kemst frá vinnu,“ segir tónlistarmaðurinn, sem spilar á Þjóðhátíð á föstudaginn og á Dillon á laugardag.
Mest lesið Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Lífið Nablinn hættur á leikskóla Lífið Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Lífið Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Lífið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið „Ég hef þurft að læra að lifa með því sem ekki verður breytt“ Lífið samstarf „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Lífið Keppast um að minnast Stewarts Lífið Skemmtileg leið til að halda minningunni á lífi Menning Fleiri fréttir Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Halla forseti var ekki heima þegar hann loks skilaði sér á leiðarenda Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Sjá meira