Stóískur rostungur fyrir austan Jón Sigurður Eyjólfsson skrifar 29. júlí 2013 07:00 Þessi stóíski rostungur hafði engar áhyggjur af nærstöddum Austfirðingum. mynd/Ólafur Örn Pétursson
Rostungur heimsótti Skálanes í Seyðisfirði í vikunni og tók lífinu með ró að sögn heimamanna. „Hann var ósköp gæfur og hafði engar áhyggjur þótt við værum þarna á vappi um tíu metra frá honum,“ segir Ólafur Örn Pétursson, staðarhaldari á Skálanesi, sem er yst á suðurtanga fjarðarins. Þetta er annar rostungurinn sem sækir Austfirðinga heim en annar sem merktur hafði verið í Færeyjum hafi stutta dvöl á Reyðarfirði fyrr í sumar. Ólafur Örn segir þennan sem nú hafi sést jafn vel tenntan og hinn fyrri. Það er varla að Austfirðingar láti sér bregða við slíka sjón en dýralíf er í miklum blóma þar eystra að sögn Ólafs Arnar. „Til dæmis er allt fullt af kríuungum og greinilega nóg æti,“ segir hann. „Ég hef aldrei séð þetta í slíkum blóma og karl faðir minn, sem er nú eldri en tvævetra, segir það sama svo þetta er ekki bara eitthvað bull í mér.“ Þar á ofan eru síðan höfrungar og stórhveli á stöðugu svamli fyrir austan. Aðalheiður Bergþórsdóttir, menningar- og ferðafulltrúi á Seyðisfirði, segir mannlífið ekki gefa dýralífinu neitt eftir en mikill fjöldi ferðamanna hefur verið þar í sumar og hver menningaratburðurinn rekið annan.
Mest lesið Inga ætlar ekki að biðjast afsökunar Innlent Þriggja ára barn ráfaði af leikskólanum og í Bónus Innlent Fjöldi ökumanna sektaður fyrir að leggja ólöglega Innlent „Kemur af sama lager og það sem er selt í partýinu í næsta bæ“ Innlent „Það þarf enginn að vera með vopn nema sérsveitin“ Innlent Spændi upp mosann á krossara Innlent Varnarviðbragð húðarinnar að verða brún í sól Innlent Rússar virðast hafa litlar áhyggjur af hótunum Trump Erlent „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Innlent Fagnar áherslum ríkisstjórnarinnar í sjávarútvegi Innlent Fleiri fréttir Gísli Jóns í tveimur útköllum frá miðnætti „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Maðurinn er fundinn Ekki sekur um að hafa valdið dauða manns í Kiðjabergi Fagnar áherslum ríkisstjórnarinnar í sjávarútvegi Ræðukóngurinn talaði í rúman sólarhring Miklar bikblæðingar á Norðurlandi Ræðukóngur Alþingis tekinn tali og varað við bikblæðingum á þjóðvegunum Þriggja ára barn ráfaði af leikskólanum og í Bónus Varnarviðbragð húðarinnar að verða brún í sól „Það þarf enginn að vera með vopn nema sérsveitin“ Hitinn 14 til 28 stig í dag: Vara við því að skilja hundinn eftir í bílnum Fjöldi ökumanna sektaður fyrir að leggja ólöglega Akureyri skelfur vegna jarðhræringa við Grímsey Inga ætlar ekki að biðjast afsökunar Tæpur fjórðungur umræðutímans fór í veiðigjöld Þyrlan kölluð út að sækja veikan farþega á skemmtiferðakipi „Kemur af sama lager og það sem er selt í partýinu í næsta bæ“ Spændi upp mosann á krossara Netið sló út í miðborginni og Hlíðunum Bræður „moka inn“ á límónaðisölu og egg spælt á bíl Sögulegt þing, geðrof eftir meðferð og bongóblíða Dópsalar handteknir sem reyndust dvelja ólöglega á Íslandi Stjórnarandstaðan sakar forseta um alvarlegan trúnaðarbrest Mótmæltu komu „spilltrar“ der Leyen Hvetja fólk til að fara sparlega með vatn Rak landganginn í flugvélina og gerði gat Þagnarbindindi í ræðustól Alþingis Veiðigjaldafrumvarpið samþykkt „Ísland er með öruggustu löndum í heimi“ Sjá meira