Sjálfsvígsvaktin brást á réttargeðdeildinni Brjánn Jónasson skrifar 23. júlí 2013 06:15 Starfsmenn réttargeðdeildar Landspítalans sem fengu fyrirmæli um að taka ekki augun af sjúklingi sem hafði áður reynt sjálfsvíg en sinntu ekki þeirri skyldu. Fréttablaðið/Vilhelm
Sex starfsmenn réttargeðdeildar Landspítalans á Kleppi hafa verið áminntir í starfi fyrir að vanrækja eftirlit með sjúklingi sem talinn var í alvarlegri sjálfsvígshættu. Brot starfsmannanna uppgvötvaðist þegar upptökur úr eftirlitsmyndavélum voru skoðaðar. „Það sást á upptökum eftirlitsmyndavélanna að starfsmennirnir höfðu ekki viðeigandi eftirlit með sjúklingnum,“ segir Páll Matthíasson, framkvæmdastjóri geðsviðs Landspítalans. Enginn skaðaðist vegna atviksins. „Það er mjög mikilvægt á svona deild að eftirlitið sé 100 prósent,“ segir Páll. Hann segir verklagið skýrt og atvikið ekki gefið tilefni til að breyta því. Atvikið kom upp 2. apríl síðastliðinn, og fengu starfsmennirnir sex formlega áminningu vegna brots í starfi rúmum mánuði síðar. Starfsmennirnir sex óskuðu í kjölfarið eftir því að Persónuvernd tæki til skoðunar hvort réttmætt væri að nýta eftirlitsmyndavélar á réttargeðdeildinni til að fylgjast með störfum starfsfólksins með þessum hætti.Myndavélar víða Í úrskurði Persónuverndar kemur fram að spítalinn hafi staðið rétt að því að skoða upptökurnar, og engar athugasemdir gerðar vegna málsins. „Það eru myndavélar víða, þetta er jú réttargeðdeild þar sem þarf að hafa mikið öryggi,“ segir Páll. Myndavélarnar séu aðeins í sameiginlegum rýmum, ekki í herbergjum sjúklinga. Í athugasemdum spítalans vegna kvörtunar starfsmannanna segir að brotið sé „litið mjög alvarlegum augum enda mikilvægir hagsmunir sem varða öryggi og líf sjúklings í húfi“. Nauðsynlegt hafi verið að bregðast við brotunum. Þar var ennfremur vísað til þess að kerfið hafi verið sett upp með vitneskju starfsmannanna til að tryggja öryggi sjúklinganna. Upptökurnar hafi verið skoðaðar til að reyna að upplýsa þjófnaðarmál, en við það hafi vanræksla starfsmannana komið í ljós. Því mótmæltu starfsmennirnir og skoruðu á spítalann að sýna fram á að meint þjófnaðarmál hafi yfir höfuð verið rannsakað.Segja fleiri hafa stundað sama vinnulag Í leiðbeiningum fyrir starfsmennina um umræddan sjúkling sagði meðal annars: „Á að baki ítrekaðar tilraunir til að stytta sér aldur. Má því ekki líta af honum auga. Mikilvægt að allir geri sér grein fyrir því að líf einstaklings er á ábyrgð deildarinnar.“ Stjórnendur Landspítalans telja starfsmennina ekki hafa fylgt þessum skýru fyrirmælum. Starfsmennirnir telja hins vegar að að vinnulag sem þeir hafi fengið áminningu fyrir væri ekki einskorðað við þá eina. Páll Matthíasson, framkvæmdastjóri geðsviðs Landspítalans, segir að allt það tímabil sem tæknin hafi leyft yfirmönnum að skoða hafi verið skoðað, og tekið á málum „á viðeigandi hátt“.
Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Segir í tísku að setja „alþjóðasamfélagið“ ofar eigin þjóð Erlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Sjá meira