Innlent

Sendiherrar stórvelda heimsækja Gaua litla

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Hernámssetrið í Hvalfirði er rekið af Guðjóni "Gaua litla“ Sigmundssyni.
Hernámssetrið í Hvalfirði er rekið af Guðjóni "Gaua litla“ Sigmundssyni. Mynd/Hernámssetrið
Rússar þakka Íslendingum liðveislu í heimsstyrjöldinni síðari og færa Hernámssetrinu í Hvalfirði muni tengda stríðinu. Sendiherrar ríkja bandamanna, eftirlifandi rússneskur hermaður ásamt rússneskri sjónvarpsstjörnu verða við athöfnina.

„Rússar leggja mikla áherslu á að þakka þann mikla stuðning sem Íslendingar sýndu þeim í seinni heimstyrjöldinni,“ segir Guðjón Sigmundsson, staðarhaldari í Hernámssetrinu í Hvalfirði sem fær að gjöf ýmsa gripi frá Rússum.

Guðjón, best þekktur sem Gaui litli, segir safn í Moskvu senda hernámssetrinu þrjá búninga, af Bandaríkjamanni, Breta og Rússa, ásamt eftirlíkingum af hríðskotabyssum þessara þjóða.

Í Hernámsetrinu að Hlöðum verður þess minnst í dag að skipalest Rússa úr Hvalfirði varð fyrir miklum skakkaföllum út af Vestfjörðum 5. júlí 1942.Mynd/Hernámssetrið
Sendiherra Rússlands á Íslandi mun afhenda gripina við formlega athöfn í dag. Einn eftirlifandi hermaður Rússa verður í sendinefnd þeirra. Guðjón segir að þangað hafi einnig boðað komu sína fulltrúar ýmissa ríkja bandamanna úr heimsstyrjöldinni; sendiherrar Breta, Bandaríkjanna, Frakklands og Noregs.

Föstudagurinn er valinn til minningar um skipalestina PQ 17 sem í júlí 1942 lagði upp frá Hvalfirði á leið í Norður-Íshaf og til Arkangelsk í Rússlandi. Mikill hörmungaratburður varð 5. júlí þegar Þjóðverjar sökktu tólf skipanna. Aðeins ellefu skip af 34 náðu í höfn.

Margra grasa kennir í Hernámssetrinu að Hlöðum og nýir gripir bætast við í dag.Mynd/Hernámssetrið
Guðjón kveður Rússa ekki hvað síst vilja þakka Íslendingum að hafa stutt mikilvægar siglingar þeirra úr Hvalfirði og lagt þannig sitt af mörkum til að ráða niðurlögum nasismans.

Meðal þeirra sem verða viðstaddir afhendinguna er Mikhail S. Gusman, varaformaður rússnesku fréttastofunnar ITAR-TASS, ásamt fimm manna tökuliði. „Hann er einn frægasti sjónvarpsmaður Rússa,“ segir Guðjón um Gusman.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×