Ekki tekið afstöðu til undirskriftasöfnunar Höskuldur Kári Schram skrifar 24. júní 2013 23:30 Ólafur Ragnar Grímsson er í opinberri heimsókn í Þýskalandi. Mynd/Anton
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, segist enn vera á þeirri skoðun að sjávarútvegs- og kvótamál séu vel til þess fallin að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu. Forseti lýsti þessu yfir í aðdraganda kosninga á síðasta ári og hafa ummæli hans verið rifjuð upp í tengslum við undirskriftasöfnun gegn breytingum á veiðileyfagjaldi. „Grundvallarskipan á meginauðlindum Íslendinga er vel til þess fallin að þjóðin ákveði sjálf hvernig þeirri skipan sé háttað. Ef þjóðaratkvæðagreiðslur eru tæki í nútímasamfélagi, sem ég tel að þær eigi að vera, þá er skipan höfuðauðlinda þjóðarinnar og nýting tvímælalaust á dagskrá,“ sagði Ólafur Ragnar í samtali við fréttastofu 365 í Þýskalandi í dag. Þar er forsetinn í opinberri heimsókn í boði Joachims Gauck, forseta Þýskalands. Forseti segist þó ekki hafa tekið afstöðu til þeirrar undirskriftasöfnunar sem nú er í gangi. „Ég tel að það skipti miklu máli fyrir stjórnkerfið og lýðræðisþróunina, störf Alþingis og störf ríkisstjórnarinnar að forseti sé ekki að blanda sér inn í meðferð mála á þinginu.“ Ólafur Ragnar fundar með Angelu Merkel, kanslara Þýskalands á miðvikudag. Með forseta í för er Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra, en hann mun funda með Guido Westerwelle, utanríkisráðherra Þýskalands. Formleg móttökuathöfn fer fram í Bellevue-höllinni í Berlín á morgun, þriðjudag. Ólafur segir að heimboð Þjóðverja endurspegli mikla vináttu og samstarfsvilja í garð Íslendinga. „Við höfum glímt við mikla erfiðleika og þess vegna er heimsóknin nú á vissan hátt staðfesting þess að okkur hefur tekist að endurreisa okkar efnahagslíf og orðspor.“
Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Fleiri fréttir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik Sjá meira