Vilja rannsaka möguleg brot 22. júní 2013 07:00 Borgaryfirvöld ætla að kanna málið betur.
Skólayfirvöld í Reykjavík hyggjast tilkynna starfsmann frístundamiðstöðvar til Barnaverndar svo að hún geti grafist fyrir um hvort hann hafi gerst brotlegur við börn á heimilinu. Þetta kom fram í fréttum RÚV í gær. Fréttablaðið sagði frá því í gær að ríkissaksóknari hefði gefið út ákæru á hendur manninum, sem er rúmlega sextugur, fyrir vörslu barnakláms. Maðurinn var sendur í leyfi þegar málið kom upp. Haft var eftir lögreglu í fréttum RÚV að ekki væri uppi grunsemdir um að maðurinn hefði brotið gegn börnum og að ekki stæði til að rannsaka það sérstaklega. Valgerður Janusardóttir, starfsmannastjóri menntasviðs borgarinnar, sagði við RÚV að eftir á að hyggja væri óheppilegt að skólayfirvöld hefðu ekki verið látin vita af því í hvaða ferli málið væri hjá lögreglu. Barnavernd geti hins vegar hjálpað til við að upplýsa hvort eitthvað hafi verið athugavert við störf mannsins með börnunum. Fram kom í Fréttablaðinu í gær að foreldrum barna á frístundaheimilinu hefði ekki verið gert viðvart um málið.Hófst með árás Málið hófst þegar ráðist var á manninn í fyrrasumar, að sögn árásarmannanna vegna þess að hann væri „barnaperri“. Hann var þá bundinn með rafmagnssnúru á höndum ofan í baðkari, keflaður með tusku og rændur. Honum var haldið nauðugum á heimili sínu í sex klukkustundir. Þá var lagt hald á tölvu hans en hún ekki skoðuð fyrr en fimm mánuðum síðar, að sögn lögreglu vegna þess hversu mikið álag var á tölvurannsóknardeild hennar.
Mest lesið Magnús Eiríksson borinn til grafar Innlent „Kanntu ekki mannasiði mannfjandi?“ Innlent Óvæntur blaðamannafundur: Las „afrekabókina“ og sýndi myndir af glæpamönnum Erlent Hafi nauðgað sex ára stúlku og eiginkonu sinni og birt af því myndir Innlent Kvaðst hafa drepið fjölskylduna og ætlað að stinga sig í hjartað Innlent Trump fer mikinn á Truth Social og virðist ætla sér Kanada Erlent Neituðu að greiða starfsfólki á leið í eigin rekstur uppsagnarfrest Innlent „Ekki gott að fólk sé endalaust að sulla svona í víni“ Innlent Heitt í hamsi vegna Grænlands Innlent Fyrsta árinu af fjórum lokið Erlent Fleiri fréttir Sverrir Bergmann hættir í bæjarstjórn Norðfirðingar gleðjast að sjá loðnuna birtast Annasamasti dagur á bráðamóttöku í lækna minnum Neituðu að greiða starfsfólki á leið í eigin rekstur uppsagnarfrest Gríðarleg fjölgun hótana og dæmi um að setið sé fyrir lögreglumönnum Kvaðst hafa drepið fjölskylduna og ætlað að stinga sig í hjartað Ofbeldi gegn lögreglumönnum magnast og baráttan hafin um Framsókn Nemi í jarðfræði hlaut Nýsköpunarverðlaunin „Kanntu ekki mannasiði mannfjandi?“ Brynjar skýtur föstum skotum á Flokk fólksins „Fyrsta ár ríkisstjórnarinnar hefur mistekist“ Magnús Eiríksson borinn til grafar Heitt í hamsi vegna Grænlands Hafi nauðgað sex ára stúlku og eiginkonu sinni og birt af því myndir Dýr framtíðarlausn að færa þjóðveginn vegna grjóthruns Borgarstjórn biður vöggustofubörnin afsökunar Eldgos á næstu vikum enn líklegasta niðurstaðan Sjö tilkynningar um heimilisofbeldi að jafnaði á dag „Ekki gott að fólk sé endalaust að sulla svona í víni“ Styrkleiki að formaður Framsóknar eigi sæti á þingi Þrjátíu á slysadeild vegna hálku og sjúkrabílar á leiðinni með fleiri Mannréttindaráðið ræðir Íran að frumkvæði Íslands Fimm starfslokasamningar kostað Hafró 35 milljónir Ögranir Trumps halda áfram og tugir leituðu á bráðamóttöku í hálkunni Á þriðja tug á bráðamóttöku vegna hálkuslysa Ingibjörg býður sig fram í formanninn Þrír fullir Íslendingar lausir úr haldi Hrókering hjá Helga og Miðflokknum vex Áss megin Sandra tekin við af Guðbrandi Flughált í höfuðborginni og víðar um land Sjá meira