Buchheit og Bjarni funduðu í fjármálaráðuneytinu Stígur Helgason skrifar 18. júní 2013 08:00 Lee Buchheit er sérfræðingur í skuldum þjóðríkja.
Bandaríski samningatæknirinn Lee C. Buchheit átti í síðustu viku fund með Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra og starfsmönnum fjármálaráðuneytisins um fyrirhugaðar samningaviðræður ríkisins við erlenda kröfuhafa, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Buchheit, sem var aðalsamningamaður Íslands í Icesave-deilunni árið 2010, er lögfræðingur og sérfræðingur í skuldum þjóðríkja. Fram kom í fréttum í apríl að erlendir kröfuhafar Glitnis og Kaupþings hefðu ráðið Bjørn Richard Johansen, norskan sérfræðing í áfallastjórnun og almannatengslum, til að gæta hagsmuna sinna gagnvart íslenskum stjórnvöldum. Johansen starfaði fyrir stjórnvöld strax eftir hrun við að samræma aðgerðir. Þá kom jafnframt fram að stjórnvöld hygðust ráða sérfræðing til að leiða málið fyrir sína hönd og að nafn Buchheits væri þar einkum nefnt. Fréttablaðið hefur ekki upplýsingar um hver átti frumkvæðið að fundi Buchheits og Bjarna í síðustu viku. Ljóst er að eftir miklu er að slægjast fyrir þann sérfræðing sem verður falið það verkefni að semja við kröfuhafa um krónueign þeirra, finna hentugustu lausnina á snjóhengjuvandanum og eftir atvikum leiðbeina stjórnvöldum um hvernig best sé að aflétta gjaldeyrishöftum. Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins er stjórnvöldum kunnugt um áhuga fleiri en Buchheits á verkinu.
Mest lesið Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Fleiri fréttir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik Sjá meira