Vanskil kostuðu SVFR leigu Norðurár Garðar Örn Úlfarsson skrifar 6. júní 2013 00:01 Stjórnarmenn í Stangaveiðifélagi Reykjavíkur hófu veiðar í Norðurá í gær en létu sér nægja fyrsta veiðidaginn í stað þess að vera tvo og hálfan dag eins og tíðkast hefur. Fréttablaðið/GVA
Stjórn Veiðifélags Norðurár íhugaði að kaupa opnunarhollið af Stangaveiðifélagi Reykjavíkur svo stjórn SVFR gæti opnað Norðurá þrátt fyrir vanskil við landeigendur. Fyrir óstaðfestan trúnaðarbrest átti að útiloka fulltrúa Lífsvals frá félagsfund Veiðifélag Norðurár ræddi að kaupa opnunarhollið í ánni og gefa það stjórn Stangaveiðifélags Reykjavíkur, sem opnað hefur ána síðustu 67 árin en er nú í vanskilum við veiðifélagið. Stjórn SVFR ætlaði að selja frá sér opnunarhollið í ljósi bágrar fjárhagsstöðu félagsins. Engin viðunandi tilboð bárust að sögn stjórnarinnar, sem opnaði því ána á fyrstu tveimur vöktunum í gær. Næstu dagar ruku hins vegar á 40 þúsund krónur dagurinn þegar þeir voru settir í vefsölu SVFR í gær. Þótt ekki hafi náðst áframhaldandi samningar milli Veiðifélags Norðurár og SVFR um leigu árinnar vildi stjórn veiðifélagsins að haldið yrði í þá hefð að stjórnarmenn SVFR opnuðu ána. Birna G. Konráðsdóttir Birna G. Konráðsdóttir, formaður veiðifélagsins, stakk því upp á félagsfundi um miðjan maí að félagið keypti opnunarhollið af SVFR til að bjóða stjórnarmönnum þess til veiða. Fram kom það sjónarmið á félagsfundinum að slíkt gæti verið góð auglýsing fyrir Norðurá en einnig að þetta gæti verið niðurlægjandi fyrir SVFR. Einn benti á að útlit væri fyrir að veiðifélagið fengi hvort eð er ekki peninga frá SVFR og gæti því allt eins keypt opnunina. Ekkert varð úr málinu. Helsta fundarefnið var einmitt uppnámið í útleigu árinnar. Um miðjan maí námu vanskil SVFR við veiðifélagið um 25 milljónum króna. Nefnt var á fundinum að vanefndir SVFR gagnvart veiðifélaginu væru ástæða fyrir því að útleiga árinnar væri ófrágengin. Sumir fundarmanna lýstu áhyggjum af því að greiðslur sem þeir treystu á myndu ekki skila sér. Tillaga kom um að semja áfram við SVFR en ekki voru greidd atkvæði um hana því meirihlutinn samþykkti að fela Einari Sigfússyni, sem verið hefur með Haffjarðará, að selja leyfi í ána næsta sumar í umboðssölu. Birna formaður las á félagsfundinum yfirlýsingu stjórnar varðandi neyðarlegt mál sem útspilaði sig eftir næsta fund þar á undan. Sagði í yfirlýsingunni að talið hafi verið að Þórir Örn Þórisson, fulltrúi Lífsvals ehf., á félagsfundinum hefði lekið upplýsingum þaðan í formann SVFR. Birna hafi því verið "gerð út af örkinni" til óska eftir að fulltrúi Lífsvals mætti ekki á næsta fund. Þórir hafi hins vegar verið hafður fyrir rangri sök og bað stjórnin hann innilega afsökunar á málinu.
Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Fleiri fréttir „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Sjá meira