Velta vanda mögulega áfram 24. maí 2013 06:00 Fundur Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Bjarni Benediktsson kynntu nýja stjórn á Laugarvatni á miðvikudag. Fréttablaðið/GVA
Ákvæði í stjórnarsáttmála Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks um að til greina komi stofnun „sérstaks leiðréttingarsjóðs“ til að ríkisstjórnin nái markmiðum sínum í tengslum við skuldaleiðréttingar eru í nýjasta tölublaði efnahagsritsins Vísbendingar ekki sögð hljóma vel. „Með því er gefið til kynna að vandanum verði velt áfram með myndun sjóðs,“ segir þar. Bent er á að margir hafi hneykslast á því að almenningur ætti að „borga fyrir meintan forsendubrest ákveðins hóps“, en sannleikurinn um leið sagður sá að við hrunið hafi orðið fjárhagsáföll hjá svo mörgum að óhjákvæmilegt væri annað en að bregðast við þeim. „Þær leiðir sem farnar hafa verið hafa ekki lokað málinu.“ Mikil fyrirheit eru sögð falin í stjórnarsáttmálanum í tengslum við leiðréttinguna á verðbólguskoti áranna 2007 til 2010. Fyrirvari um að beita megi „fjárhæðartakmörkum vegna hæstu lána og setja önnur skilyrði til að tryggja jafnræði í framkvæmd og skilvirkni úrræða“ geti hins vegar bent til þess að aðgerðirnar dugi ekki þeim sem verst eru staddir. „Mikið slys væri að ganga ekki alla leið í þetta sinn eins og segir í sáttmálanum: Óvissu um stöðu lántakenda gagnvart lánastofnunum verður að linna,“ segir í Vísbendingu.- óká
Mest lesið Eldur kviknaði á Völlunum Innlent Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Erlent Vaxtahækkunin geti gert illt verra Innlent Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Innlent „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Innlent Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Innlent Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Innlent Fleiri fréttir Eldur kviknaði á Völlunum Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Sjá meira