Vonar að hlutur kvenna aukist 18. maí 2013 08:45 Sara Nassim Hlakkar til haustsins þegar hún hefur nám við AFI. Mynd/Úr Einkasafni
Sara Nassim, kvikmyndagerðarkona á Íslandi, komst nýlega inn í meistaranám í framleiðsludeild American Film Institute í Los Angeles. „Það er náttúrulega frábært að komast þarna inn, og ég hlakka til að byrja í ágúst,“ sagði Sara í samtali við Fréttablaðið. American Film Institute er einn virtasti kvikmyndaháskóli í heimi og því ljóst að það er mikill heiður að hljóta inngöngu. Á meðal útskrifaðra nemenda AFI eru Darren Aronofsky og David Lynch. „Ég bjóst ekkert við því að komast inn enda fáir teknir inn á hverju ári.“ Sara hefur verið iðin við kolann síðastliðin ár og hefur komið að gerð fjölda kvikmynda, auglýsinga og sjónvarpsþátta á Íslandi. Ljóst er að mikill missir verður að Söru í stéttinni. „Ég hlakka til að fara í skóla og veit að ég mun læra margt sem getur nýst mér í starfi. Kvikmyndagerð er skemmtileg, en á köflum krefjandi vinna. Ég vil halda áfram á sömu braut, en það verður ekkert verra að skipta aðeins um umhverfi þótt ég muni sakna allra sem ég er vön að vinna með hér heima,“ sagði Sara. „Ég vona bara að íslensk kvikmyndagerð haldi áfram að þróast á þeim hraða sem hún hefur verið að gera undanfarin ár. Hver veit? Kannski kem ég heim og loksins verður búið að rétta hlut kvenna í bransanum,“ sagði Sara kímin. - ósk
Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira