Börnin áhugasöm um slökun og svefn 16. maí 2013 21:00 Dans-fitness vakti mikla lukku. Myndir/Valli „
Þetta hefur verið alveg frábært, og það er svo gaman að sjá hvað krakkarnir taka vel í þetta,“ segir Áslaug Traustadóttir, kennari í Rimaskóla. Gleðin var við völd á uppskeruhátíð skólans sem haldin var í Gufunesbæ í Grafarvogi í gær. Lífsstíl sem valgrein í Rimaskóla er skipt í fjóra hluta sem eru næringarfræði, svefnvenjur og slökun, heilsumatreiðsla og hreyfing. Áslaug er annar umsjónarmaður átaksins og segir það hafa gefið góða raun. Á uppskeruhátíðinni kenndi ýmissa grasa, meðal annars fór fram klifurkennsla í turni, FOLF, íslenska frisbígolffélagið leiðbeindi nemendum í frisbígolfi og taekwondo-deild ÍR sýndi bardagalistir og braut spýtur. Námskeiðinu er ætlað að stemma stigu við síversnandi heilsu íslenskra ungmenna. Umræða um heilsufar og líkamsástand íslenskra ungmenna hefur verið áberandi undanfarin ár. Æ fleiri eiga við heilsufarsvanda að stríða og yfirþyngd íslensku þjóðarinnar mælist vaxandi, ekki eingöngu meðal ungmenna. Nemendur fá að spreyta sig á eldamennsku eftir uppskriftabók sem umsjónarmenn hafa útbúið með heilsusamlegum réttum. Þeir fá líka að prófa sem flestar íþróttagreinar, nokkuð sem vakti mikla lukku og flestir fundu eitthvað við sitt hæfi. „Það kom fljótlega í ljós að mörg barnanna höfðu aldrei haft tækifæri til að prófa þessar íþróttir og finna þannig hreyfingu við sitt hæfi,“ segir Áslaug og bætir við að íþróttaiðkun barna sé kostnaðarsöm og því ekki hægt um vik fyrir barnafjölskyldur að prófa sig áfram þar til rétt íþróttagrein eða form hreyfingar sé fundin fyrir börnin. „Það var einnig gaman að sjá hvað nemendurnir voru áhugasamir um djúpslökun og svefnvenjur, en þessi hugmynd okkar Eyrúnar Ragnarsdóttur spratt út frá því hversu algengt brottfall úr íþróttum er meðal unglinga.“ Þetta segir Áslaug meðal annars stafa af því að margir unglingar séu í tölvum langt fram á nætur. „Með því að segja þeim hvaða áhrif ónægur svefn og hvíld hafa vonum við að þau tileinki sér heilbrigðari svefnvenjur.“ Umsjónarmenn átaksins, þær Áslaug og Eyrún, hafa útbúið námsbók, kennsluáætlun, ítarefni, uppskriftir og vinnubækur fyrir nemendur og vona þær að með því að vekja athygli á þessu muni fleiri grunnskólar fylgja á eftir. Átakið er styrkt af Landlæknisembættinu. Taekwondo-deild ÍR sýndi spýtubrot með handafli.
Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Máttu tæma lónið Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira