Helguvík gæti fengið orku frá Búðarhálsi Kolbeinn Óttarsson Proppe skrifar 16. maí 2013 07:00 Framkvæmdir við Búðarhálsvirkjun eru í fullum gangi og stefnt er að afhendingu orku úr virkjuninni fyrir árslok. Myndin var tekin í ágúst 2011. fréttablaðið/vilhelm
Verði tafir á framleiðsluaukningu í álveri Rio Tinto Alcan í Straumsvík um einhvern tíma mun orkan úr Búðarhálsvirkjun geta nýst í önnur verkefni. Það gæti leyst úr orkuþörf álvers Norðuráls í Helguvík. Fregnir bárust af því í apríl að Rio Tinto, móðurfélag álversins í Straumsvík, væri að endurskoða fjárhagsáætlun og tímaramma þriggja stækkunarverkefna, þar á meðal í Straumsvík. Wall Street Journal sagði það hluta af stefnu nýs forstjóra, Sams Walsh, um að draga úr kostnaði og einblína frekar á námastarfsemi, sem væri arðbærasti hluti starfseminnar. Ólafur Teitur Guðnason, upplýsingafulltrúi Rio Tinto Alcan á Íslandi, segir að ekki hafi verið hætt við verkefnið. „Ég get lítið sagt um þetta í dag en ég get sagt eitthvað um það á morgun,“ sagði hann í samtali við Fréttablaðið í gær. Í samtali við fréttastofu Ríkisútvarpsins í apríl sagði hann ljóst að verkefnið yrði dýrara en að hefði verið stefnt. Heimildir Fréttablaðsins herma að tæknilegir örðugleikar hafi komið upp við verkefnið, þó að það sé að einhverju leyti komið til framkvæmda. Auka átti framleiðslugetu fyrirtækisins um 40 þúsund tonn; úr 190 í 230 þúsund. Framkvæmdir við Búðarhálsvirkjun eru í fullum gangi og stefnt er að því að hægt verði að afhenda orku úr henni fyrir áramót. Áætlað afl hennar er um 95 megavött. Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, segir að það sé ekki hans að svara fyrir hvað verði um orkuna, fari hún ekki strax í Straumsvík, og vísar til forsvarsmanna Rio Tinto. „Við vitum alveg að það verður seinkun á verkefninu en það er algjörlega á þeirra hendi að tjá sig um stöðu þess.“ Óvissa hefur ríkt um orkuöflun vegna álvers í Helguvík og voru virkjanakostir í neðrihluta Þjórsár, sem nýta átti í verkefnið, settir í biðflokk í rammaáætlun. Þá hefur Bjarni Bjarnason, forstjóri OR, sagt að fyrirtækið muni ekki reisa fleiri virkjanir fyrr en ljóst sé hvernig það getur uppfyllt strangari mengunarkröfur, en orka úr Hverahlíðarvirkjun var hugsuð fyrir álver í Helguvík. Ragnar Guðmundsson, forstjóri Norðuráls, segir fyrirtækið vera tilbúið í verkefnið. „Það sem okkur vantar er að klára orkumyndina.“-
Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Máttu tæma lónið Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira