Útséð með kornrækt í Svarfaðardal í sumar 9. maí 2013 07:00 Kornakur Trausta á Hofsá 8. maí. Girðingarstaurarnir segja heimamönnum að snjófargrið á landinu er jafnfallið yfir metri á dýpt. Mynd/Trausti Þ
Trausti Þórisson, bóndi á Hofsá í Svarfaðardal, segir málið einfalt spurður um aðstæður í Svarfaðardal. „Það er glórulaust að stefna að því að sá korni hér. Miðað við hvernig staðan er í dag þá yrði það ekki fyrr en í júní í fyrsta lagi. Og það er einfaldlega of seint,“ segir Trausti. Trausti segir að þetta eigi við um aðra kornbændur í Dalvíkurbyggð en allt annað sé uppi á teningnum inn í Eyjafirði. „Þar held ég að einhverjir séu í startholunum að sá þar. Það eru miklir öfgar í þessu því við þurfum ekki nema 20 kílómetra nær Akureyri og þá er snjólaust. Hér er aftur allt á kafi,“ segir Trausti og bætir við að sveitungar hans lendi ekki eins illa í því og Hörgdælingar þar sem er minni snjór. Þar blotnaði í snjó og allt breyttist í klaka. „Við höldum í vonina um að það sé ekki dautt undir snjónum hjá okkur. En það kemur ekki í ljós fyrr en snjóa leysir.“ Trausti hefur nýtt sitt korn sjálfur í fóður. Ef allt fer sem horfir er ljóst að fóðurbætiskaup aukast verulega og það er ekki gefið. Kílóið af fóðurbæti fer á um 100 krónur, heimfluttur, en ræktað kíló af korni leggur sig á 30 til 35 krónur kílóið. Trausti víkur að því að miklir heyflutningar séu í gangi norður, aðallega frá Suðurlandi. Hann tekur sérstaklega til þess að sunnlenskir bændur hafi verið mjög liðlegir og sanngjarnir í verðlagningu. „Menn hafa ekki verið að okra þó að aðstæður bjóði klárlega upp á það,“ segir Trausti.
Mest lesið Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent Fleiri fréttir „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Sjá meira