Krefst 18 mánaða fangelsis yfir Lýði Stígur Helgason skrifar 9. maí 2013 07:00 Lýður og Bjarnfreður segjast báðir alsaklausir af ákærunni og telja hana raunar fráleita. Fréttablaðið/Stefán
Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, krefst átján mánaða fangelsisdóms yfir Lýði Guðmundssyni í Exista-málinu svokallaða. Þá krefst hann sex til átta mánaða fangelsisdóms yfir lögmanninum Bjarnfreði Ólafssyni. Þetta kom fram á lokadegi aðalmeðferðar málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. „Sé einhvern tímann ástæða til að beita refsiákvæðum hlutafélagalaganna af fullum þunga þá er það í þessu máli,“ sagði Ólafur. Refsiramminn fyrir brot af þessu tagi er tvö ár. Málið snýst um fimmtíu milljarða hlutafjárhækkun Existu í desember 2008, sem einungis var greiddur fyrir einn milljarður króna. Hann var að auki fenginn að láni frá Lýsingu. Ákæruvaldið segir þetta í augljósri andstöðu við 16. grein hlutafélagalaga um að ekki megi greiða minna en nafnverð fyrir hluti og fullyrðir að eini tilgangurinn með fléttunni, sem hann kallaði bíræfna og ósvífna ráðagerð, hafi verið að tryggja Lýði og bróður hans Ágústi áframhaldandi yfirráð yfir Existu eftir að Nýja Kaupþing opinberaði áform sín um að taka félagið yfir. Í því skyni hafi bæði stjórn Existu og Fyrirtækjaskrá verið blekkt. Ólafur sagði málið fordæmalaust. „Brot ákærðu eru stórfelld og stuðluðu að því að ákærði, Lýður, eignaðist stóran hlut í almenningshlutafélagi með ólögmætum hætti,“ sagði hann. „Það er vandséð í hvaða tilfellum er hægt að brjóta af sér með alvarlegri hætti gagnvart hlutafélagalögum.“ Gestur Jónsson, verjandi Lýðs, eyddi drjúgum hluta málflutningsræðu sinnar í að að rökstyðja að ákæran stæðist ekki skoðun; í henni væri Lýður ákærður sem stjórnarmaður félagsins BBR ehf., sem keypti hlutina í Existu, en ekki sem formaður stjórnar Existu, sem samþykkti hinn meinta ólögmæta gjörning. Þar með væri málinu í raun snúið á haus. „Einhvers staðar á leiðinni frá upphafi rannsóknar og að útgáfu ákæru urðu hinn ágæti saksóknari og heilbrigð skynsemi viðskila,“ sagði Gestur. Þorsteinn Einarsson, verjandi Bjarnfreðs, gagnrýndi mjög að skjólstæðingur hans væri ákærður fyrir að sinna eðlilegum lögmannsstörfum með því að senda tilkynningu til Fyrirtækjaskrár. „Það er fráleitt að skjóta sendiboðann,“ sagði hann og benti á að málið byggði í raun allt á mistökum Fyrirtækjaskrár, þar sem hlutafjáraukningunni var hleypt í gegn athugasemdalaust fyrir vangá ólöglærðs starfsmanns. „Ef Fyrirtækjaskrá hefði sinnt lagaskyldu sinni væri ekkert mál í gangi,“ sagði hann. Dómur verður að líkindum kveðinn upp innan fjögurra vikna.
Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Máttu tæma lónið Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira