Ástand kolmunnans sagt ágætt Svavar Hávarðsson skrifar 7. maí 2013 07:00 Skip HB Granda hafa lokið kolmunnaveiðum. mynd/hbgrandi
Ingunn AK, skip HB Granda, kom til Vopnafjarðar í gærmorgun með um 2.000 tonn af kolmunna sem fengust á veiðisvæðinu sunnan Færeyja um helgina. Að sögn Róberts Axelssonar í viðtali á heimasíðu fyrirtækisins, sem var skipstjóri í veiðiferðinni, gengu veiðarnar vel og aldrei þessu vant var veðrið með skásta móti. „Þetta leit ekkert of vel út þegar við fórum frá Vopnafirði en veðurspáin breyttist og fyrir utan kaldaskít fyrsta hálfa daginn eða svo þá var veðrið bara fínt. Við fengum þennan afla í fimm holum á rúmum tveimur sólarhringum. Kolmunninn er farinn að fitna og það var töluvert líf á veiðisvæðinu. Ástand stofnsins virðist að minnsta kosti vera ágætt miðað við það sem við höfum séð síðustu vikurnar,“ segir Róbert. Með þessum farmi er heildarkolmunnaveiði skipa HB Granda á vertíðinni, sem stóð í einn mánuð, orðin rúmlega 21.000 tonn og eftirstöðvar úthlutaðs árskvóta, um 1.100 tonn, verða nýttar í sumar þegar veiðar á norsk-íslenskri síld og makríl hefjast. Það verður að öllu óbreyttu ekki fyrr en í byrjun júlímánaðar.
Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Máttu tæma lónið Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira