Stór verkefni krefjast styrks þingmeirihluta Þorgils Jónsson skrifar 6. maí 2013 11:00 Bjarni Benediktsson og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hófu gærdaginn á Austurvelli þar sem þeir keyptu SÁÁ-álfa af Guðrúnu Jónu Stefánsdóttur áður en þeir héldu burt úr bænum til stjórnarmyndunarviðræðna. Mynd/Daníel
Stjórnmál Stjórnarmyndunarviðræður milli Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks hófust í gær og munu halda áfram í dag. „Óvenju vandasöm verk“ bíða úrlausnar á næsta kjörtímabili að sögn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formaður Framsóknarflokksins. Því sé eðlilegast að leitast við, í fyrstu atrennu hið minnsta, að mynda ríkisstjórn með nægilega öflugan meirihluta á þingi til að hafa afl til að sinna þeim verkum. Í tilkynningu um stjórnarmyndunarviðræðurnar segist Sigmundur hafa fundið góðan vilja hjá Bjarna til að vinna að aðgerðum vegna skuldamála. Horft verði til hugmynda beggja flokkanna til að ná settu marki í þeim málum. Bjarni og Sigmundur vildu ekki tjá sig að loknum fundi. Allt frá því fyrir kosningar var líklegasta stjórnarmynstrið talið vera Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur, enda fengu flokkarnir 38 þingsæti af 63. Þó virtist örla á efasemdum í síðustu viku um að áherslur flokkanna væru samræmanlegar. Í samtölum Fréttablaðsins við nokkra þingmenn flokkanna tveggja var hins vegar ekki annað að heyra en að fullur vilji væri til þess að flokkarnir tveir næðu saman um stærstu málaflokkana, meðal annars skuldamál, atvinnumál og skatta. Mestar líkur voru taldar á því að samstarf þeirra yrði raunin. Bjarni sagði í viðtali við Bylgjuna í gær að hann myndi ekki gera kröfu um að fá forsætisráðherrastólinn í þessum viðræðum. Flokkarnir hafa ekki gefið sér tímaramma um viðræðurnar en Bjarni sagðist bjartsýnn á að þær gætu gengið fljótt fyrir sig. „Ég er bjartsýnn á að vikan muni reynast okkur drjúg til að ljúka verkinu.“ Fyrirsjáanlegt að B og D hefji leikinnGrétar Þór Eyþórsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskólann á Akureyri, segir nokkuð fyrirsjáanlegt að fyrst sé reynt við þetta stjórnarmynstur. „Það var ekkert óeðlilegt við það að Sigmundur kannaði stöðuna hjá öllum hinum flokkunum en það var alltaf líklegast að stærstu flokkarnir – þeir einu sem geta myndað tveggja flokka stjórn og hafa verið saman í stjórnarandstöðu í fjögur ár – byrjuðu á því að reyna að ná saman.“ Grétar segir að einhver munur sé á stefnuskrám flokkanna en það þurfi ekki að koma í veg fyrir að saman náist. „Það dettur engum í hug að báðir flokkar nái sínu ítrasta fram í stjórnarmyndunarviðræðum. Það er því ljóst að flokkarnir munu nú reyna að finna málamiðlun sem báðir geta sætt sig við.“
Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Máttu tæma lónið Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira