Biðlaunaréttur upp á 121 milljón króna 4. maí 2013 09:00 Alþingi
Biðlaunaréttur þingmanna, ráðherra og aðstoðarmanna ráðherra nemur 121.190.484 krónum. Óvíst er hvort allir nýti sér rétt sinn og taki þeir að sér önnur störf dragast launin frá biðlaunaréttinum. Alls luku 27 þingmenn störfum á Alþingi eftir nýafstaðnar kosningar. Sumir þeirra náðu ekki kjöri en aðrir höfðu ákveðið að gefa ekki kost á sér. Þessir þingmenn eiga allir rétt á biðlaunum. Þeir sem hafa setið lengur en eitt kjörtímabil eiga rétt á sex mánaða biðlaunum. Þeir sem hins vegar hafa aðeins setið eitt kjörtímabil, eða skemur, eiga rétt á þriggja mánaða biðlaunum. Þá skiptir engu hvort þeir sátu allt kjörtímabilið eða aðeins nokkra mánuði. Þingfararkaupið er 630.025 krónur á mánuði. Laun ráðherra samanstanda af þingfararkaupi og ráðherraálagi. Forsætisráðherra er með 1.231.092 krónur á mánuði, en aðrir ráðherrar 1.112.606 krónur. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra á rétt á sex mánaða biðlaunum, eða tæplega 7,4 milljónum króna. Hún hættir bæði sem ráðherra og þingmaður og er því talin báðum megin í þessu uppgjöri, þar sem laun hennar eru tvískipt. Hún á hins vegar rétt á því að fara á eftirlaun og því er óvíst hvort hún þiggur biðlaun. Hinir sjö ráðherrarnir sitja allir áfram á Alþingi. Þeir eiga þó rétt á biðlaunum vegna ráðherrahluta launanna, eða 482.581 krónu, í sex mánuði, samtals 3,6 milljónir króna hver ráðherra. Aðstoðarmenn ráðherra eru 11 talsins og þeir fá sömu laun og skrifstofustjórar, eða 715.235 krónur á mánuði. Þeir eiga rétt á þriggja mánaða biðlaunum, eða rúmlega 2,1 milljón króna hver. kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Máttu tæma lónið Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira