Sakar félagana um pólitískar ofsóknir Garðar Örn Úlfarsson skrifar 25. apríl 2013 08:30 Sjálfstæðismennn í bæjarstjórn Kópavogs takast á um nýtingu Kórsins í Kópavogi. Fréttablaðið/Vilhelm „
Þetta er einhver misskilningur hjá Ármanni blessuðum,“ segir Gunnar I. Birgisson, bæjarfulltrúi í Kópavogi, um bókun Ármanns Kr. Ólafssonar bæjarstjóra um að ályktanir Gunnars varðandi gestafjölda í íþróttahúsum einkenndust af pólitískum ofsóknum. Gunnar óskaði fyrir nokkru eftir upplýsingum um nýtingu á íþróttahúsum í Kópavogi. Á bæjarstjórnarfundi á þriðjudag lagði hann fram bókun um málið ásamt samflokksmanni þeirra Ármanns, Aðalsteini Jónssyni. „Eftir að hafa skoðað talningar í íþróttahúsum Kópavogsbæjar, er ljóst að nýting nokkurra íþróttamannvirkja er ekki ásættanleg. Sérstaklega á þetta við um knatthúsið og tvöfaldan íþróttasal í Kórnum,“ sagði í bókuninni. „Algjörlega óafsakanlegt“ væri að nýta ekki íþróttamannvirki bæjarins betur. „Þær ályktanir sem bæjarfulltrúarnir Gunnar Ingi Birgisson og Aðalsteinn Jónsson draga af talningum í íþróttahúsum eru beinlínis rangar og einkennast af pólitískum ofsóknum gagnvart einu íþróttafélagi,“ bókaði þá Ármann bæjarstjóri. Íþróttafélagið sem hann vísar til er HK sem hefur umsvif í Kórnum.Ármann Kr. Ólafsson og Gunnar I. BirgissonSpurður um þetta mál segist Ármann hafa verið ósáttur við framsetningu Gunnars og Aðalsteins á efni greinargerðar sem lögð var fram í mars. Þar hafi komið fram að Kórinn sé betur nýttur en íþróttahúsið Smárinn. „Ég skil bara ekkert í þeim að setja þetta fram með þessum hætti þegar skýrslan sýnir að þetta er akkúrat þveröfugt. Ég átta mig ekki á af hverju er verið að snúa út úr henni,“ segir Ármann. Gunnar segir bókun Ármanns byggða á misskilningi. „Þetta var allt vel meint og er bara hvatning til íþróttafélaganna að reyna að nýta húsin betur. Það kostar nú ekkert smávegis eitt svona hús,“ bendir Gunnar á. Ármann hafnar því að þessi deila hafi áhrif á samstarfið í meirihlutanum. „Þetta er einangrað mál,“ undirstrikar bæjarstjórinn. Eins og Ármann hafnar Gunnar því að þessar væringar breyti nokkru um samstarf meirihlutans sem sjálfstæðismenn mynda með bæjarfulltrúum Y-listans og Framsóknarflokks. „Þetta er bara stormur í vatnsglasi,“ útskýrir Gunnar.
Mest lesið „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Fleiri fréttir Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Sjá meira