Verðbólgufjandinn Rannveig Guðmundsdóttir skrifar 18. apríl 2013 06:00 Ungt fólk þekkir ekki eyðingu óðaverðbólgu fyrri áratuga sem varð til þess að Framsóknarflokkurinn verðtryggði bæði laun og skuldir. Sami flokkur afnam seinna verðtryggingu launa og til varð óverðtryggð launakróna og verðtryggð skuldakróna. Samfylkingin vill leiða okkur út úr verðbólgu og misgengi með því að ná góðum samningi við Evrópusambandið og leggja hann í dóm kjósenda með upptöku evru sem markmið.Persónuleg saga af verðbólgu Við eignuðumst fyrsta barnið kornung. Skírnarpeningarnir, 2.000 krónur, voru settir inn á bankabók í Útvegsbanka Íslands og þá átti ekki að hreyfa hvernig sem á stæði. Fyrsta áratug barnsins var verðbólgan um 10 prósent á ári og þótti auðvitað ofsaleg. Á áttunda áratug komst verðbólga í 50 prósent á ári, það var kallað framsóknaráratugurinn. Í kjölfarið varð óðaverðbólga sem náði frá 75% og fór upp í þriggja stafa tölu. Við bjuggum að mestu í Noregi á átta ára tímabili fram yfir 1970 og einhvern tíma á árunum eftir heimkomuna fengum við senda heim bankabókina góðu með skírnarpeningunum. Það var búið að klippa hana því hún var komin í mínus. Áhugavert er að setja þetta innlán í samhengi við að fjórum árum áður en við eignuðumst barnið var stofnaður Sparisjóður Kópavogs, sem ég kynntist vel síðar, og þeir sem gerðust ábyrgðarmenn greiddu 2.000 krónur. Sömu fjárhæð og skírnarpeningarnir góðu. Ábyrgðarmenn urðu seinna sjálfkrafa stofnfjáraðilar þegar ný fjármálastefna varð ríkjandi og ábyrgðargreiðslan nú metin til fjár. Ekki þekki ég ábyrgðargreiðsluna í miklu eldri Sparisjóði Hafnarfjarðar en þar varð frægt þegar menn seldu slíkt stofnfé á 50 milljónir króna.Saga okkar er saga margra Tíminn í Noregi við nám og störf varð okkur til mikils happs. Þar festist maður endanlega í hugmyndafræði jafnaðarstefnunnar og þar lærðist sparnaður og fjárhagsleg ábyrgð. Við vorum auðvitað miklu seinni en jafnaldrarnir að koma okkur þaki yfir höfuðið, komin yfir á fertugsaldur. Við fundum draumaíbúð í tvíbýlishúsi í vesturbæ Kópavogs en þá kom í ljós að ekki voru lánuð húsnæðislán út á gamalt svo hún varð ekki okkar. Við fengum persónulegt lán af því að lífeyrissparnaður okkar var í nokkrum lífeyrissjóðum og nýttist ekki heldur til lána og keyptum þriggja herbergja risíbúð í Hlíðunum. Börnin fengu herbergin, við sváfum í stofunni. Tveimur árum seinna fórum við að skoða stærra og viti menn, hin íbúðin í tvíbýlishúsinu í Kópavogi var nú til sölu. Spennandi. En nú kostaði sú næstum þrisvar sinnum meira en hin fyrir tveimur árum. Sú átti að kosta tvær og hálfa milljón en nú var sett á þessa sex og hálf svo ekki var hún skoðuð frekar. Þetta var verðbólguástandið. Við vorum lánsöm því við enduðum í gömlu húsi í Kópavogi sem þurfti miklar endurbætur og höfum dundað okkur við að lagfæra það og síendurbæta á þeim tæpu 40 árum sem liðin eru. En saga okkar er saga margra.Þak yfir höfuðið er stórmál Eftir að ég byrjaði í pólitík urðu húsnæðismál eldri og yngri mér afar hugstæð. Ég er enn ánægð þegar ég fer um Vogatunguna þar sem minn bæjarstjórnarmeirihluti stóð fyrir byggingu smáhýsa fyrir aldraða. Neðst voru sjálfseignaríbúðir, fyrir ofan íbúðir í verkamannabústaðakerfi, hlutdeildaríbúðir og fáeinar leiguíbúðir. Ég átti eftir að vera formaður Húsnæðisstjórnar ríkisins og beita mér í lánamálum og félagslegum byggingum. Það hefur skipt miklu að lánað hefur verið til nýrra og gamalla íbúða, markaðshúsnæðis og félagslegs húsnæðis og þess vegna var það ömurlegt þegar Framsóknarflokkurinn afnam félagslega húsnæðiskerfið í síðustu stjórnartíð sinni. Samfylkingin vill byggja félagslegt húsnæði og leiguíbúðir og vera með húsnæðisbætur sem nýtast bæði eigendum og leigjendum. Það kann ég að meta. En mikilvægast af öllu er að Samfylkingin vill nýjan gjaldmiðil sem tryggir að aldrei aftur verði hér óðaverðbólga og misgengi. Gjaldmiðil sem þú getur notað hvenær sem er og hvar sem er. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið X-R mun standa vörð um innviði og arðbærar eignir Reykvíkinga! Linda Jónsdóttir Skoðun Vika6 – Vilt þú læra að stunda gott kynlíf? Sigfús Aðalsteinsson,Hlynur Áskelsson Skoðun Dúllur okkar daga Hallgrímur Helgason Skoðun Viltu fleiri bílastæði í miðbæinn? Eyþór Máni Steinarsson Skoðun Innganga Íslands í ESB: Hvað verður um lífeyrissjóðinn þinn? Júlíus Valsson Skoðun Ég skildi ekki Íslendinga fyrst Valerio Gargiulo Skoðun Af stjórnarháttum eins manns í Skeiða- og Gnúpverjahreppi – Yfirgangur og atlaga að lýðræði Gerður Stefánsdóttir Skoðun Þegar öldrun birtist okkur eins og hún er Berglind Indriðadóttir Skoðun Hafnfirskur evrópuvöllur? Já takk! Árni Stefán Guðjónsson Skoðun Höfum við ekki nóg við peningana að gera? Þollý Rósmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Íslenskt mállíkan – fullveldi eða útvistunarsamningur? Jón Guðnason,Hrafn Loftsson,Stefán Ólafsson,Kristinn R. Þórisson,Hannes Högni Vilhjálmsson,Henning Arnór Úlfarsson skrifar Skoðun Þegar öldrun birtist okkur eins og hún er Berglind Indriðadóttir skrifar Skoðun Klárum verkin fyrir börnin og íþróttafólkið okkar Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar Skoðun Hver borgar fyrir auknar strandveiðar? Björk Ingvarsdóttir,Mikael Rafn L. Steingrímsson skrifar Skoðun Ég skildi ekki Íslendinga fyrst Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Stöðu minnar vegna Kristín Helga Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Enn eitt neyðarkall Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Dúllur okkar daga Hallgrímur Helgason skrifar Skoðun Staða Íslands í alþjóðakerfinu: Mikilvægi upplýstrar umræðu Auður Birna Stefánsdóttir,Tómas Joensen,Pia Hansson skrifar Skoðun Jarðgangnaáætlun - staðfesta eða stefnuleysi Sigurður Ragnarsson skrifar Skoðun „Þetta reddast“ og strategísk sýn á alþjóðamál Erlingur Erlingsson skrifar Skoðun Uxahryggir og Kaldidalur – lykill að öflugri Borgarbyggð og betri ferðaþjónustu á Íslandi Sigurður Guðmundsson skrifar Skoðun Vika6 – Vilt þú læra að stunda gott kynlíf? Sigfús Aðalsteinsson,Hlynur Áskelsson skrifar Skoðun Að endurskilgreina velgengni: Frá auði og völdum til tengsla og velsældar Dóra Guðrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hafnarfjörður er að verða fullbyggður – hvað gerum við nú? Stefán Már Víðisson skrifar Skoðun Hafnfirskur evrópuvöllur? Já takk! Árni Stefán Guðjónsson skrifar Skoðun Áminningarskyldan og þjónusta hins opinbera Kristján Páll Kolka Leifsson skrifar Skoðun 36 stunda vinnuvika, leikskólar og komandi kjarasamningar Guðmundur D. Haraldsson skrifar Skoðun Fyrir fólkið Jónas Þór Birgisson skrifar Skoðun Börnin okkar eiga betra skilið en gjörunninn mat Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir,Heiðbjört Ósk Ófeigsdóttir skrifar Skoðun X-R mun standa vörð um innviði og arðbærar eignir Reykvíkinga! Linda Jónsdóttir skrifar Skoðun Bílastæði og borgaraleg óhlýðni Helgi Áss Grétarsson skrifar Skoðun Af stjórnarháttum eins manns í Skeiða- og Gnúpverjahreppi – Yfirgangur og atlaga að lýðræði Gerður Stefánsdóttir skrifar Skoðun Viltu fleiri bílastæði í miðbæinn? Eyþór Máni Steinarsson skrifar Skoðun Tækifæri og áskoranir í samningaviðræðum við ESB Vilborg Ása Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Sýndarmennska Sjálfstæðisflokksins í bílastæðamálum miðborgarinnar Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun 100 ára uppbygging á næstu 15 árum Halla Thoroddsen skrifar Skoðun Höfum við ekki nóg við peningana að gera? Þollý Rósmundsdóttir skrifar Skoðun Dalirnir heilla… eða hvað? Kristinn R Guðlaugsson skrifar Skoðun Fleiri vilja standa á hálum ís Guðlaug Ingibjörg Þorsteinsdóttir skrifar Sjá meira
Af stjórnarháttum eins manns í Skeiða- og Gnúpverjahreppi – Yfirgangur og atlaga að lýðræði Gerður Stefánsdóttir Skoðun
Skoðun Íslenskt mállíkan – fullveldi eða útvistunarsamningur? Jón Guðnason,Hrafn Loftsson,Stefán Ólafsson,Kristinn R. Þórisson,Hannes Högni Vilhjálmsson,Henning Arnór Úlfarsson skrifar
Skoðun Hver borgar fyrir auknar strandveiðar? Björk Ingvarsdóttir,Mikael Rafn L. Steingrímsson skrifar
Skoðun Staða Íslands í alþjóðakerfinu: Mikilvægi upplýstrar umræðu Auður Birna Stefánsdóttir,Tómas Joensen,Pia Hansson skrifar
Skoðun Uxahryggir og Kaldidalur – lykill að öflugri Borgarbyggð og betri ferðaþjónustu á Íslandi Sigurður Guðmundsson skrifar
Skoðun Að endurskilgreina velgengni: Frá auði og völdum til tengsla og velsældar Dóra Guðrún Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Börnin okkar eiga betra skilið en gjörunninn mat Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir,Heiðbjört Ósk Ófeigsdóttir skrifar
Skoðun Af stjórnarháttum eins manns í Skeiða- og Gnúpverjahreppi – Yfirgangur og atlaga að lýðræði Gerður Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Sýndarmennska Sjálfstæðisflokksins í bílastæðamálum miðborgarinnar Kristinn Sv. Helgason skrifar
Af stjórnarháttum eins manns í Skeiða- og Gnúpverjahreppi – Yfirgangur og atlaga að lýðræði Gerður Stefánsdóttir Skoðun