Tíska og hönnun

Hanna úr steypu

Rúna Thors og Hildur Steinþórsdóttir nýttu sér íslenska framleiðslumöguleika og tækni við hönnun bekkjarins Kletts. Myndir/Eva Björk Ægisdóttir
Rúna Thors og Hildur Steinþórsdóttir nýttu sér íslenska framleiðslumöguleika og tækni við hönnun bekkjarins Kletts. Myndir/Eva Björk Ægisdóttir
Nýtt útihúsgagn, steinsteyptan garðbekk, unnu þær Rúna Thors vöruhönnuður og Hildur Steinþórsdóttir arkitekt, í samvinnu við FabLab á Sauðárkróki og Steypustöðina.

Bekkurinn kemur á markaðinn nú í vor en Steypustöðin framleiðir bekkinn. Hann var frumsýndur á HönnunarMars.

„Áhugi okkar beggja á steypu varð kveikjan að þessu samstarfi," segir Rúna.

„Okkur þóttu líka þau form sem þegar eru sýnileg úr steypu, full ferköntuð en í steypunni felast miklir möguleikar, hún getur fylgt hvaða formi sem er." Rúna segir þær einnig hafa viljað sýna fram á þá möguleika sem eru fyrir hendi á Íslandi, bæði í tæknivinnslu og framleiðslu og hverju samvinna hönnuða og framleiðslufyrirtækja getur skilað. „Ef hægt er að sýna fram á hvað er hægt að gera hér kveikir það vonandi bæði í hönnuðum og innlendum framleiðendum um samstarf. Samvinnan við steypustöðina gekk frábærlega vel."

Bekkurinn fékk nafnið Klettur og segir Rúna þær hafa sótt innblásturinn í náttúruna og einnig hafi þær viljað tengja áferðina á steypunni við náttúruna.

Í steypunni felast miklir möguleikar hvað form varðar. Á hliðum bekkjarins má sjá textíláferð sem unnin var upp úr ljósmyndum af smágróðri.
„Nemendur í Myndlistaskólanum í Reykjavík unnu fyrir okkur textíl upp úr ljósmyndum af lyngi. Textílinn var hægt að skanna inn hjá FabLab á Sauðárkróki og fræsa út í mót," útskýrir Rúna en áferðin kemur fram í hliðum bekksins.

„Við gátum unnið módel af bekknum hjá FabLab en sjálft mótið var smíðað hjá Bátahöllinni á Hellissandi. Steypustöðin steypir í mótið og sér um framleiðslu á bekknum. Við hugsum hann bæði fyrir almenningsrými og í heimilisgarða en það er hægt að sitja á honum tvo vegu. Í framhaldinu er svo ætlunin að hanna fleiri vörur í kringum Klett; blómaker og minni sæti, stóla eða kolla og jafnvel borð," segir Rúna.

Hægt er að tylla sér á bakið á bekknum. Hann er hugsaður bæði fyrir almenningsrými og heimilisgarða og er von á blómakerjum og fleiri vörum í stíl í framhaldinu.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×