Innlent

Fyrsta veislan eftir hrunið

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir kveður þingmenn með kvöldverði.
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir kveður þingmenn með kvöldverði.
Alþingi hélt þingmannaveislu á Hótel Sögu á laugardardagskvöld. Þangað var boðið þingmönnum og varaþingmönnum og mökum auk forseta Íslands og nokkurra embættismanna.

Fyrir hrun voru þingmannaveislur árlegur viðburður en Helgi Bernódusson, skrifstofustjóri Alþingis, segir veisluna nú þá fyrstu á kjörtímabilinu. Um 130 manns hafi mætt. Áætlaður kostnaður með veitingum og skemmtiatriðum sé um tvær milljónir króna. Um hafi verið að ræða eins konar skilnaðarveislu í lok kjörtímabils.

„Forseta Alþings fannst rétt að bjóða þingmönnum og varaþingmönnum til kvöldverðar rétt fyrir þinglok,“ segir Helgi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×