Kemur verst niður á þeim efnaminnstu Þorgils Jónsson skrifar 27. febrúar 2013 06:30 Yfir tveir fimmtu keyptu barnaföt í síðustu utanlandsferð sinni, að því er fram kom í könnun árið 2011. Fréttablaðið/Anton
Þingmaður segir gjöld og skatta á innfluttar vörur koma verst niður á þeim efnaminnstu, sem ekki hafi efni á að ferðast til útlanda og njóta þess tollfrelsis sem það felur í sér. Lægri gjöld og skattar muni efla verslun og atvinnulíf hér á landi. Gjöld og skattar á innfluttar vörur koma verst niður á hinum tekjulágu, sem ekki hafa tækifæri til þess að versla í útlöndum og er í því tilliti hægt að tala um fátækraskatt. Þetta segir Guðlaugur Þór Þórðarson, alþingismaður Sjálfstæðisflokksins, og bætir því við að stjórnvöld þurfi ekki að vera rög við að fella niður tolla og álögur einhliða til að efla verslun innanlands. Fréttablaðið hefur fjallað mikið um mál tengd tollum og öðrum innflutningsgjöldum síðustu mánuði en Guðlaugur segir núverandi kerfi skaðlegt. „Það sem skiptir máli er að skilgreina markmiðin. Í mínum huga er markmiðið að flytja verslun til landsins og fjölga atvinnutækifærum hér. Með því munum við í fyrsta lagi bæta lífskjör almennings og auka atvinnutækifæri þeirra sem starfa í verslun og einnig auka tækifæri í ferðamennsku." Það megi tryggja með því að lækka eða afnema innflutningsgjöld, sem hvetji Íslendinga til að versla frekar heima. Guðlaugur segir að undir núverandi kerfi sé fólki mismunað eftir efnahag og vísar í kannanir því til stuðnings. Könnun sem Capacent Gallup gerði undir lok árs 2011 sýnir til dæmis að rúmur þriðjungur svarenda hafði síðast keypt hversdagsföt í utanlandsferðum og 42 prósent sögðu að síðast þegar þau keyptu barnaföt hefði það verið í útlöndum. Þegar litið er til tekna kemur í ljós mikill munur á verslunarvenjum. Til dæmis keyptu 75 prósent þeirra sem höfðu fjölskyldutekjur undir 250.000 krónum á mánuði síðast barnaföt á Íslandi, en rúmur helmingur, 55 prósent, þeirra tekjuhæstu, sem voru með eina milljón eða meira í mánaðarlaun, keypti síðast barnaföt erlendis. „Þróunin er öll á þann veg að við erum í raun að hækka fátæktarskatta," segir Guðlaugur. „Það er láglaunafólkið sem á enga aðra valkosti og er að versla hér heima. Þeir sem eru með hærri laun eru að versla í útlöndum. Það er staðreyndin." Spurður hvaða vöruflokk ætti fyrst að taka fyrir segir Guðlaugur að barnafötin „öskri á okkur". Þegar allt komi til alls snúist málið um að bæta stöðuna hér á landi með afnámi eða lækkun gjalda. „Af hverju erum við að skaffa vinnu fyrir fólkið í Boston frekar en á Laugaveginum?" segir Guðlaugur.
Mest lesið Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Styður Repúblikana með tugum milljarða Erlent Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Innlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Erlent Skuldar ekkert Innlent Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Innlent Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Erlent Fleiri fréttir Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Synjað um heimilisuppbót vegna sameiginlegrar þvottavélar og snyrtingar Vona að ágreiningur liti ekki þing ASÍ Háskólarnir verði betur tengdir með breyttri strætóleið Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Undirmönnun hjúkrunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Sjá meira