Stór hluti máltíða fer í ruslið 26. febrúar 2013 17:30 Prófessor Ingibjörg Gunnarsdóttir, prófessor í næringarfræði.
Einungis um 60 prósent af þeim hitaeiningum sem fimm aðalmáltíðir hvers dags gefa nýtast sjúklingum Landspítalans. Því þarf að huga betur að næringu inniliggjandi sjúklinga, allt frá mati á næringarástandi til viðeigandi næringarmeðferðar. Þetta er niðurstaða rannsóknar sem næringarfræðingar gerðu á orku- og prótínneyslu sjúklinga á hjarta- og lungnaskurðdeild Landspítala og greint var frá í nýjasta tölublaði Læknablaðsins. "Þessar niðurstöður komu mörgum á óvart,“ segir Ingibjörg Gunnarsdóttir, prófessor í næringarfræði, sem fór fyrir rannsóknarteyminu. Rannsóknin fór þannig fram að allir matarafgangar, ásamt millibitum, voru vigtaðir og skráðir í þrjá daga samfellt þegar liðnar voru að minnsta kosti 48 klukkustundir frá aðgerð. Ingibjörg telur líklegt að niðurstöðurnar eigi við fleiri deildir innan spítalans. Vannæring veikir ónæmiskerfið Verkefnið hófst fyrst árið 2008 þegar þverfaglegum hópi innan spítalans var falið að skrifa klínískar leiðbeiningar um næringu sjúklinga. Þær voru birtar 2011 og var þar mælt með skimun fyrir vannæringu. "Vannæring hefur lengi verið þekkt vandamál meðal sjúklinga, bæði erlendis og hérlendis,“ upplýsir Ingibjörg. Hún bætir við að vannæring meðal sjúklinga geti haft áhrif á líkamlega virkni, minnkað batalíkur og aukið tíðni fylgikvilla, en við það aukist sjúkdómsbyrði og dánartíðni. Aukinni tíðni fylgikvilla og lengri legutíma fylgi mikill kostnaður og því geti bætt næringarmeðferð innan sjúkrastofnana aukið gæði þjónustunnar og hagræn áhrif. "Fólk gerir sér ekki almennilega grein fyrir hversu mikils virði maturinn er sem hluti af meðferð sjúklingsins,“ áréttar Ingibjörg. Fjörutíu prósent fæðu enda í ruslinu Þorri þátttakenda (yfir 80%) náði ekki lágmarksviðmiðum fyrir orkuneyslu annars vegar og prótínneyslu hins vegar. Við mat á næringarástandi reyndust 23% sjúklinga annaðhvort vera vannærðir eða eiga það á hættu. Þrátt fyrir að miðað hafi verið við neðri mörk áætlaðrar orku- og prótínþarfar í þessari rannsókn var orku- og prótínneyslan skilgreind ófullnægjandi hjá allflestum þátttakendum (allt að 90%), jafnvel á fimmta degi eftir aðgerð. Einungis um 60 prósent af þeim hitaeiningum sem fimm aðalmáltíðir dagsins gáfu nýttust sjúklingunum. Ingibjörg bendir á að sú næring sem í boði var fyrir sjúklingana hafi fullnægt bæði orku- og prótínþörf þátttakenda hefði hennar verið neytt. "Áskorun framtíðar snýr fyrst og fremst að því að meta hvers vegna svo stór hluti fæðunnar endar í ruslinu,“ segir Ingibjörg. Hún segir hugsanlegar skýringar margar, til dæmis viðhorf til sjúkrahúsmáltíða, lystarleysi í kjölfar aðgerðar eða lyfjagjafa og skort á mannafla á deildum. "Máltíðirnar hafa dálítið týnst því það er enginn ábyrgur fyrir að fylgjast með hvað sjúklingurinn borðar. Þetta er verklag sem þarf að breyta,“ segir Ingibjörg með áherslu. "Ef sjúklingur borðar ekki matinn þarf að skrá það svo hægt sé að bjóða honum eitthvað annað.“ Hún bendir á að unnið hafi verið að því að þróa einfalda aðferð við að skrá hlutfall af því sem sjúklingar klára af disknum. "Vonandi tekst að innleiða þá aðferð á spítalanum.“ Góð næring skiptir miklu Mikilvægt er að sjúklingar nærist vel til að ná bata.Þess ber að geta að verið er að endurskoða matseðla sjúklinga á Landspítala þar sem hugað er að því að gera matinn orku- og prótínþéttari. "Skammtarnir verða minni en gefa jafn mikla orku,“ segir Ingibjörg. Í vor, sumar og haust er ætlunin að gera aðra mælingu og sjá hvort þessi breyting á matseðli hafi áhrif. Frekari rannsóknir aðkallandi Skimun fyrir vannæringu mun ein og sér ekki leysa vandamálið, að sögn Ingibjargar, heldur er teymisvinna næringarfræðinga eða næringarráðgjafa, hjúkrunarfræðinga, lækna, lyfjafræðinga og annarra er koma að umönnun sjúklinga gríðarlega mikilvæg. "Innan spítalans eru aðeins sex eða sjö stöðugildi næringarráðgjafa. Þeir geta ekki sinnt þessu verkefni einir og þurfa aðstoð,“ segir Ingibjörg. Hún telur einnig vert að reyna að gera sjúklinga sjálfa meðvitaða um mikilvægi næringar. "Matur er ein ódýrasta meðferðin,“ áréttar hún og telur að frekari rannsóknir á næringarástandi ýmissa sjúklingahópa sé einnig mjög aðkallandi.
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Innlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Innlent Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Innlent Fleiri fréttir Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Sjá meira