Feimnismál að biðja um herbergi dagpart Þorgils Jónsson skrifar 7. febrúar 2013 06:00 Hótel Saga býður upp á herbergi til leigu að degi til, en sá valkostur hefur notið vinsælda hjá stórum alþjóðlegum hótelkeðjum. Fréttablaðið/Vilhelm
Íslensk hótel leigja sum hver út herbergi frá morgni fram á síðdegi eins og færst hefur í vöxt á hótelum víða um heim. Þessi kostur er til dæmis í boði hér á landi á Radisson Blu Hótel Sögu, en starfsmaður þar segir ekki mikið sótt í slíkt. Á vef BBC er fjallað um þetta fyrirbæri og þess getið að dagsútleiga á herbergjum hafi verið litin hornauga og þeir sem sæktust eftir slíku taldir standa í einhverju lítt siðsamlegu. Flugvallahótel hafi þó verið undantekning lengi vel, en í dag bjóði hins vegar mörg hótel og jafnvel frægar alþjóðlegar keðjur upp á slíkt. Þessi þjónusta sé oft ekki tiltekin á vefsíðum hótelanna en standi til boða ef hringt sé fyrir fram og beðið um hana. Útleigutíminn er milli átta á morgnana og sjö á kvöldin, en með því að leigja herbergin út á þessum tíma geta hótelin fengið tekjur af þeim eftir að næturgestir eru farnir og áður en næstu gestir koma um kvöldið. Þeir sem helst nýta sér þessa þjónustu eru, að sögn BBC, ferðamenn sem eru að bíða eftir kvöldflugi eða þurfa hvíld milli funda, en þetta má einnig nýta sér til að geyma farangur. Meðal þeirra alþjóðlegu keðja sem minnst er á í frétt BBC eru tvær með starfsemi hér á landi; Hilton og Radisson. Hilton á Suðurlandsbraut býður ekki upp á þennan valkost, að sögn starfsmanns í bókunardeild, en á Radisson Blu á Hótel Sögu stendur slíkt til boða. „Við bjóðum upp á slíkt og verðið er um helmingurinn af verðinu fyrir venjulega næturgistingu," segir Gunnar Guðmundsson, starfsmaður í gestamóttöku, í samtali við Fréttablaðið. Hann segir ekki mikið sótt í þessa þjónustu en þá sé það yfirleitt fólk sem hafi misst af flugi og sé að bíða eftir næstu vél. Spurður hvort fólki þyki feimnismál að kaupa herbergi til svo skamms tíma segir Gunnar að sumir séu ekki lausir við það. „Fólk skýrir oft mjög vel út hvers vegna það þurfi slíkt, en við erum hins vegar ekkert að spá í það, heldur afgreiðum bara viðskiptavininn án athugasemda."
Mest lesið „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Erlent Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Innlent Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Innlent Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Erlent Sköpuðust aðstæður fyrir „snælduvitlaust veður“ á Siglufirði Innlent Óveður gengur yfir landið Innlent Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Innlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Fleiri fréttir Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Sköpuðust aðstæður fyrir „snælduvitlaust veður“ á Siglufirði Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Sjá meira