Taka lyf í vanlíðan og enda á spítala Sunna skrifar 5. janúar 2013 08:00
Að minnsta kosti 400 íslensk börn urðu fyrir það alvarlegri eitrun á árunum 2005 til 2010 að leitað var með þau á sjúkrahús. Ekkert barn lést á tímabilinu af völdum eitrunar en stór hluti þeirra var lagður inn á spítala til aðhlynningar. Langalgengustu eitranirnar voru meðal eldri barna á aldrinum 15 til 18 ára, sem tóku viljandi inn lyf vegna andlegrar vanlíðanar eða neyslu. Mikill meirihluti þeirra fékk geðræna meðferð í kjölfarið. Þetta eru niðurstöður nýrrar rannsóknar Dagmarar Daggar Ágústsdóttur, læknanema á fimmta ári við Háskóla Íslands (HÍ), í samstarfi við læknadeild HÍ, barna- og unglingageðdeild Landspítalans (BUGL), Barnaspítala Hringsins og bráðasvið LSH. Í rannsókn Dagmarar er eitrunum skipt í fjóra flokka; óviljandi slys, misnotkun, tilraun til sjálfsvígs og annað eða óvíst. Óviljandi slys eru algengasta orsök eitrunar hjá yngri börnum en tilraun til sjálfsvígs hjá þeim eldri og á unglingsstigum. Alls voru 740 tilfelli skoðuð í rannsókninni, sem náði til allra barna á aldrinum 0 til 18 ára sem höfðu komið á Barnaspítala Hringsins eða bráðamóttöku LSH í Fossvogi vegna lyfjaeitrana eða annarra eitrana á árunum 2005 til 2010. Upplýsingum um börnin var safnað úr sjúkraskrám. Þar af voru 472 eitranir í 397 börnum sem féllu undir skilyrði rannsóknarinnar. Dagmar kynnti niðurstöður sínar á ráðstefnu í líf- og heilbrigðisvísindum í HÍ í gær.
Mest lesið Meintur þjófur leitaði til lögreglu vegna framkvæmdastjórans Innlent Fjórir látnir eftir skotárás á Manhattan Erlent Maxwell biðlar til Hæstaréttar Erlent Langtímarannsóknir skorti á áhrifum kreatíns Innlent Íhuga að greiða sextíu milljarða til að friðþægja Trump Erlent „Þetta er auðvitað stórhættulegt“ Innlent Fundaði með Guterres: Tveggja ríkja lausnin sé eina lausnin Innlent Dóttirin í Súlunesi ákærð Innlent Vonast til að spáin rætist ekki: Rigning og 22 metrar á sekúndu Innlent Ungir menn staðnir að því að skjóta gelkúlum á vegfarendur Innlent Fleiri fréttir Hefja gjaldtöku við höfnina í Stykkishólmi Ágengir ferðamenn hafi sært syrgjandi Mýrdælinga Neyðarástand á Gasa og ágengir túristar angra kirkjugesti Dóttirin í Súlunesi ákærð Vonast til að spáin rætist ekki: Rigning og 22 metrar á sekúndu Rannsaka áhrif samfélagsmiðla á heilastarfsemi barna Meintur þjófur leitaði til lögreglu vegna framkvæmdastjórans Gat ekki sannað að verkstæðið tjónaði vélina Mögulegur fyrirboði um goslok Fundaði með Guterres: Tveggja ríkja lausnin sé eina lausnin Ungir menn staðnir að því að skjóta gelkúlum á vegfarendur Enn gýs úr einum megingíg og virknin nokkuð stöðug Langtímarannsóknir skorti á áhrifum kreatíns „Þetta er auðvitað stórhættulegt“ Styttist í háþróuð gervigreindarsvindl á íslensku Setja þurfi meiri þunga í hagsmunagæslu gagnvart ESB Neyðast til að endurbyggja grunnskólann vegna myglu Bílar fullir af bensínbrúsum séu úti um alla borg Áhyggjur af tollum ESB, olíuþjófur gómaður og fífldjarfir ferðamenn „Í minningu sonar - og allra þeirra sem aldrei komu heim“ MBA-nemi kvartaði og kveinaði en beið lægri hlut Hjólreiðamaður slasaður við Kerlingarfjöll Árekstur í Öxnadal Ung stúlka varð fyrir húsbíl og hljóp af vettvangi Vilja að ríkisstjórnin leggi allt kapp í að afstýra tollunum Sagði sig úr þingmannahóp: „Ég læt ekki nota mig í slíkum tilgangi“ Ekkert hægt að gera nema húseigendur kæri Segir afkomu hundraða ógnað með beinum hætti Mikil umferð á gosstöðvunum og óvissa á Grundartanga Gripinn glóðvolgur í skjóli nætur við að tappa af bílnum Sjá meira