Vigdís Hauks verður formaður fjárlaganefndar 6. júní 2013 09:14
Sigrún Magnúsdóttir fyrrverandi borgarfulltrúi verður kjörin formaður þingflokks Framsóknarflokksins á fundi hans í dag, samkvæmt heimildum fréttastofunnar. Sömu heimildir herma að Ásmundur Einar Daðason kunni að taka við þingflokksformennskunni þegar líður á kjörtímabilið. Þá verður Vigdís Hauksdóttir kosinn formaður fjárlaganefndar Alþingis. Venjan er að sá meirihluti sem fer með völd á Alþingi skipi jafnframt alla formenn og varaformenn fastanefnda þingsins. Brugðið var út frá þessu árið 2011 eftir breytingar á þingskaparlögum og nú verður stjórnarandstöðunni boðin formennska í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd og velferðarnefnd auk varaformennska í þremur nefndum. Samkvæmt heimildum fréttastofunnar verður Sigríður Ingibjörg Ingadóttir þingmaður Samfylkingarinnar formaður velferðarnefndar en flokkurinn fær jafnframt fyrsta varaformann umhverfis- og samgöngunefndar og annan varaformann fjárlaganefndar. Vinstri græn fá formennsku í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd og fyrsta varaformann í annarri nefnd. Björt framtíð fær fyrsta varaformann í einni nefnd og annan varaformann í annarri og Píratar fá annan varformanninn í einum af nefndum Alþingis, en flokkarnir ganga frá skipan í nefndir á þingflokksfundum sem hefjast klukkan tíu. Alþingi kemur saman í fyrsta skipti eftir kosningar að lokinni guðsþjónustu í dómkirkjunni klukkan hálf tvö.
Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Fleiri fréttir „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Sjá meira