Hús umlukið snjóskafli Ingveldur Geirsdóttir skrifar 19. maí 2013 10:39
Þó komið sé fram í miðjan maí ræður veturkonungur enn ríkjum í Dalvíkurbyggð. Vorið hefur ekki náð að velta honum úr sessi þó víða sé farið að glitta í græna bletti. Fyrsti snjórinn féll í október og svo bættist hvert snjóalagið við á eftir öðru og aldrei hlánaði á milli. Svanfríður Jónasdóttir sveitarstjóri segir kostnað sveitarfélagsins við snjómokstur nánast þrefaldan á við meðalár og það taki verulega á bæjarsjóð. „Það eru komnar á milli 40 og 50 milljónir í vetur í snjómokstur. Þegar við erum vön að vera að borga 13 til 14 milljónir. Þannig þetta er meira en að segja það og þetta eru þá peningar sem eru ekki notaðir í annað, því miður," segir Svanfríður. Þegar leið á veturinn var ekki pláss fyrir þann snjó sem þurfti að moka af götunum í bænum svo brugðir var á það ráð að aka honum út í sjó sem eykur kostnaðinn við snjómoksturinn til muna að sögn Svanfríðar. „Við bindum samt vonir við það að við fáum skilning á því eins og hjá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga að þetta eru hamfarir sem við fáum ekki ráðið við. Það er ekki sanngjarnt þegar svona veður ganga yfir á takmörkuðum svæðum á landinu að íbúarnir þar séu látnir bera kostnaðinn einir," segir Svanfríður. Hæstu skaflarnir í bænum eru enn á fjórða meter á hæð og þéttir eins og jökull. Nú þegar snjóa er að leysa sjást skemmdirnar sem hann hefur valdið; girðingar, gróður og leiktæki koma löskuð undan snjónum. Íbúðarhús við Hringtún á Dalvík er enn á kafi í snjó. Um tveggja metra snjódýft er á garðinum en á sama tíma í fyrra voru íbúar hússins búnir að setja niður kartöflur. Guðmundur Óskarsson íbúi í húsinu segir að þau sjái ekki fram á að setja kartöflurnar niður í ár fyrr en í júlí. Íbúar á Dalvík hafa brugðið á ýmis ráð til að flýta fyrir bráðnun skaflanna, sandi hefur verið dreift á snjóinn til að hann hitni fyrr og Guðmundur hefur notað garðvökvunarbúnaðinn til að bleyta upp í snjónum með von um að hann bráðni fyrr. Verst þykir honum hvað snjórinn fer illa með gróðurinn og þá er snúrustaurinn í garðinum mjög illa farinn.
Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Fleiri fréttir Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Sjá meira