Ekkert þokast í deilu geislafræðinga og LHS Þorgils Jónsson skrifar 25. júlí 2013 23:00 Ekkert þokast í kjaradeilu Landspítalans - Háskólasjúkrahúss og geislafræðinga, en um mánaðarmótin taka gildi uppsagnir tveggja af hverjum þremur geislafræðingum við sjúkrahúsið. Fréttablaðið/Vilhelm
Engin lausn er enn í sjónmáli í kjaradeilu geislafræðinga og Landspítalans - háskólasjúkrahúss (LHS), en á fimmtudaginn í næstu viku munu uppsagnir tveggja af hverjum þremur geislafræðinga við sjúkrahúsið taka gildi ef ekki næst saman. Á fundi í dag voru geislafræðingar beðnir um að haga störfum sínum, ef til uppsagnanna kemur, líkt og um verkfall sé að ræða. „Það á ekki við því að fólkið hefur sagt upp og er hætt,“ segir Katrín Sigurðardóttir, formaður Félags íslenskra geislafræðinga, í samtali við Fréttablaðið. Aðspurð segir hún að henni þyki ólíklegt að hennar félagsmenn muni ganga að því. „Ég fæ mjög hörð viðbrögð frá þeim sem ég hef talað við, um að þetta sé ekki kostur í stöðunni.“Katrín SigurðardóttirHún segir ekkert hafa komið fram sem gefi von til þess að úr leysist. „Það hefur ekkert nýtt komið fram í stöðunni til lausnar málsins.“ Katrín telur þó að eitthvað þurfi að fara að gerast á næstu dögum. „Það er alveg ljóst. Þegar málin hafa þróast þannig að nánast heil starfsstétt getur ekki hugsað sér lengur að starfa á stofnuninni, þá hlýtur eitthvað að þurfa að gerast. Okkar starf er ríkur þáttur í því sem þarna fer fram og án þessara starfsmanna er ekki hægt að reka þessa stofnun. Það þarf að leysa málið og það gengur ekki að ætla að reka sjúkrahúsið til lengri tíma á neyðarúrræðum. “ Jón Hilmar Friðriksson, staðgengill forstjóra Landspítalans, segist bjartsýnn um að úr leysist áður en til uppsagnanna kemur. „Já, sögulega hafa flestar svona deilur leystst, sem betur fer, margar þó á lokametrunum.“ Jón Hilmar segir neyðaráætlun spítalans vegna uppsagnanna verða kynnta í næstu viku, og samkvæmt henni ætti að vera hægt að sinna brýnustu tilfellum um stundarsakir. „En aðaláherslan er auðvitað lögð á að leysa málið, svo ekki þurfi að grípa til neyðaráætlana,“ segir hann. Boðað hefur verið til fundar á morgun, föstudag, þar sem geislafræðingar munu svara beiðni spítalans, en næstkomandi þriðjudag munu geislafræðingar funda með velferðarráðherra.
Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Segir í tísku að setja „alþjóðasamfélagið“ ofar eigin þjóð Erlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Sjá meira